157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[11:33]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Það eru nokkrir hlutir sem maður hefur tekið sérstaklega eftir í öllu þessu máli, frá því að það kom fram í mars. Í greinargerð með tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu kemur efnislega alveg ótrúlega fátt fram. Efnislega er það fyrst og fremst 3. kaflinn sem snýr að stöðu Íslands og áskorunum í breyttum heimi, samstarfi ríkja og bara því sem hefur verið að gerast í heiminum á undanförnum misserum. Það virðist vera áherslan og lítið talað um annað. Hv. þingmaður spurði í sinni ræðu: Hvar liggja rauðu línurnar? Hvar liggja áherslurnar? Um hvað erum við að fara að semja? Það er efnislega það sem við ættum að ræða. Það skiptir máli þegar atkvæðagreiðslan fer fram í haust, hvenær sem hún verður, að þjóðin geti að einhverju leyti tekið afstöðu til þessa. Það er mikilvægt að það komi fram um hvað verið er að fjalla og um hvað á að semja. Ég hef talað fyrir því almennt, reyndar áður en farið var í umræður um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, í sambandi við varnar- og öryggismál, að það eigi að fræða fólk um það sem er að gerast í heiminum í stað þess að hræða það. Það er veigamikið atriði og um fátt annað virðist vera meira rætt í þingsályktunartillögunni en um varnar- og öryggismálin. Ef hv. þingmaður myndi kannski aðeins koma inn á það sem snýr að því að fræða en ekki hræða, hún hefur reynslu úr fyrri störfum sem sendiherra í utanríkisþjónustunni. Svo er það náttúrlega mikilvægt það sem hv. þingmaður kom inn á með NATO, EFTA og EES, að það eru ekki yfirþjóðlegir samningar, varnarsamningurinn og annað. Það skiptir verulegu máli. Ég bið hv. þingmann að fara aðeins í gegnum það hvað breytist þá út frá þessu, og hver munurinn er þá á því og því að við gengjum í Evrópusambandið, bara fyrir stöðu okkar og samningsstöðu.