þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir prýðisgott andsvar. Hann talaði aðeins um þingsályktunartillöguna. Í ræðu minni hér áðan — þetta var reyndar allt of stuttur ræðutími — kom ég inn á hræðsluáróðurinn sem mér finnst vera gegnumgangandi í þingsályktunartillögunni. Ég upplifi þetta svolítið á þann veg að menn átti sig ekki á því að Evrópusambandið er ekki varnarbandalag. Evrópusambandið er tollabandalag, menn hljóta nú að vera búnir að átta sig á því, en það er einhvern veginn verið að þvæla öryggis- og varnarmálum þarna inn. Ég meina, við erum í NATO. Flest ríki Evrópusambandsins eru í NATO. Evrópusambandið býr ekki yfir nokkrum varnarinnviðum. Jú, jú, þeir eru með einhvern sjóð, nýsköpunarsjóð, sem verið er að reyna að ginna ríki til að taka þátt í. Mér skilst að það sé eitt af meginmarkmiðunum í þessari samstarfsyfirlýsingu utanríkisráðherra að það sé svo frábært fyrir nýsköpunarfyrirtæki að fara í hergagnaframleiðslu. En varðandi reynslu mína af utanríkisþjónustu þá var það nú bara þannig, þegar síðustu aðlögunarviðræður fóru fram, að öll utanríkisþjónustan var undirlögð af þeim samningaviðræðum. Þetta var alger forgangur og allt annað var sett til hliðar. Á svona tímum, þegar við ættum að vera að fókusera á það að koma ríkisfjármálunum á réttan kjöl, þá mun allur fókus embættismannakerfisins fara í þessar viðræður. Og ég er ekki bara að tala um utanríkisráðuneytið, það eru öll ráðuneyti sem munu fara á bólakaf í þetta mál.