þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir seinna andsvarið. Ég er nú að reyna að hugsa hvar ég var stödd þegar fyrri aðlögunarviðræðurnar áttu sér stað. Ég var að hluta til heima í ráðuneytinu og svo var ég að hluta til á sendiskrifstofunni í Vínarborg, minnir mig. Það er þannig að báknið þenst út. Hellingur af aukastarfsmönnum var ráðinn inn og það kæmi mér ekki á óvart — reyndar hefur utanríkisráðuneytið verið mjög duglegt við að ráða starfsfólk. Það er nú orðið þannig að það er svo margt starfsfólk í ráðuneytinu og þjónustunni — reyndar ekkert á póstum í ráðuneytinu sjálfu — að maður kann ekki nöfnin á öllum. En það er annað. En það sem ég vil segja: Segjum sem svo, sem ég vona að verði ekki, að þjóðin samþykki að fara í þessar aðlögunarviðræður. Þá verður það þannig að allt annað verður sett á hliðarlínuna. Aðlögunarviðræðurnar munu taka allan fókus alls staðar á öllum sendiskrifstofum. Og ég hef áhyggjur af hagsmunagæslunni. Ég hef haft miklar áhyggjur af hagsmunagæslu hingað til en ef við förum í þessar aðlögunarviðræður þá hef ég gríðarlega miklar áhyggjur af hagsmunagæslu. Getum við treyst utanríkisráðherra Viðreisnar til að gæta hagsmuna okkar gagnvart Evrópusambandinu þegar hún er svo óð í að ganga þarna inn, alveg sama hvað tautar og raular? Það er stofnaður heill stjórnmálaflokkur í því skyni að ganga í Evrópusambandið.