þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar til að byrja á landbúnaðinum því að ég deili þeim áhyggjum sem hv. þingmaður lýsir af áhrifum á landbúnað. Ég held líka að við þurfum að eiga samtalið um hver þróun landbúnaðar innan Evrópusambandsins hefur verið. Þar erum við að sjá miklu meiri iðnvæðingu. Ef við horfum á eðli byggðar hringinn í kringum landið þá er sú framtíðarsýn sem mér hugnast í landbúnaði að við sjáum upprisu fjölskyldubúsins, að við sjáum sterkari fjölskyldubú rísa og þróast um allt land en forðumst þá kannski iðnvæðinguna sem ég held að við munum sjá í samhengi við landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, þannig að ég tek undir þessar áhyggjur.
Mig langar hins vegar að koma að samningsmarkmiðunum. Eitt af því sem mér finnst vanta í þessa þingsályktunartillögu er að rauðu línurnar séu algerlega skýrar. Og af hverju segi ég að þær þurfi að vera skýrari? Jú, vegna þess að í raun og veru er þingsályktunartillagan það plagg sem þingið afgreiðir en líka það plagg sem þjóðin hefur í höndunum til upplýsingar um hvað ríkisstjórnin ætlar sér varðandi skýrar afmarkanir eða takmarkanir. Um leið, ef það yrði þannig að atkvæðagreiðslan myndi leiða til aðildarviðræðna, þá yrði þingsályktunin ákveðið nesti inn í viðræðurnar.
Mig langar því til að spyrja hvort hv. þingmaður sé sammála mér um að það þurfi að skerpa betur á þessum rauðu línum í þingsályktunartillögunni sjálfri.