157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[11:45]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir prýðisgott andsvar. Hún spyr um landbúnaðinn og rauðu línurnar. Það eru engar rauðar línur. Það eru engar rauðar línur, hvorki í þingsályktunartillögunni né í nefndaráliti meiri hlutans. Vilja menn tala um rauðar línur? Er það rauð lína í nefndaráliti meiri hlutans þegar segir að tollvernd verði felld niður við aðildarsamning? Eru það rauðar línur? Ég myndi bara segja að það væri grafalvarlegt mál og ætti að verða til þess að aldrei verði hægt að leggja einhvern aðildarsamning fyrir þingið. Það verður ekki hægt ef þessi tollvernd verður felld niður. Það er bara útilokað. Verði tollverndin felld niður mun það gera út af við íslenskan landbúnað. Það mun gera út af við íslenskan landbúnað og það mun gera út af við byggðafestu í þessu landi.

(Forseti (BergÓ): Forseti biðst afsökunar á því að hafa tekið eina mínútu af andsvararétti hv. þingmanns en lofar að bæta það upp síðar.)