þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það er niðurskurður víða. En varðandi ræðu hv. þingmanns langar mig til að fylgja aðeins eftir samhenginu við reynslu hv. þingmanns úr sendiherrastörfum. Ég tel að það sé ákaflega mikilvægt fyrir okkur á þessum tímapunkti að horfa á öflugt alþjóðasamstarf Íslands. Við vorum að hittast á fundi, alþjóðanefndir þingsins sem snúa að norrænni samvinnu, norðurslóðasamvinnu og vestnorrænni samvinnu, og það sem er áhugavert er að í mínum huga, og mig langar til að heyra hvort hv. þingmaður er sammála því, er full samstaða þvert á alla flokka í þinginu um að efla norræna samvinnu, um að efla þurfi norðurslóðasamvinnu nú þegar við erum að sjá gjörbreytingar á Norðurskautsráðinu, og líka um að við þurfum að efla samvinnu sem snýr að Grænlandi og Færeyjum í samhengi við öryggismál og sameiginlega hagsmuni. Ég er líka þeirrar skoðunar að við eigum ekki að vera að velja á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Við þurfum líka, ekki síst í samhengi við öryggismál, að efla samstarf við Bandaríkin.
En mig langar til að spyrja hv. þingmann: Er hv. þingmaður sammála því að það þurfi hins vegar að efla alþjóðlegt samstarf Íslands og að horfa mætti á það, í samhengi við hagsmunagæslu, að beina sjónum þangað sem við erum öll sammála, beina sjónum að samstarfi þar?