þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég geri ráð fyrir því að fá aðeins lengri tíma núna, fyrst hæstv. forseti var svona mikið kvikyndi við mig áðan að taka af mér mínútu. Er það?
(Forseti (BergÓ): Þetta jafnast út.)
Jafnast út, segir hann. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir prýðisgott seinna andsvar. Fyrst ég fæ aðeins lengri tíma áður en ég svara seinna andsvari þá langar mig aðeins að ræða meira um landbúnaðinn, það er svo rosalega mikilvægt, gríðarlega mikilvægt. En það er nú þannig að óvissan vegna mögulegra aðildarviðræðna er svo erfið landbúnaðinum. Það mun draga úr fjárfestingum, eðlilega. Það mun draga úr fjárfestingum íslenskra bænda. Ef þeir standa frammi fyrir því að Ísland sé að fara í Evrópusambandið og tollvernd verði afnumin, eiga þeir þá að vera að fjárfesta í róbótum, nýjum fjósum og fjárhúsum og hvaðeina, kaupa ný hross? Ég held að menn muni ekki gera það. Fyrir utan það að stuðningskerfi ESB er svo gjörólíkt því íslenska. Það er gjörólíkt því íslenska.
En að alþjóðasamstarfinu. Ég er alþjóðasinni. Auðvitað eigum við að efla alþjóðasamstarf og við erum í miklu og góðu alþjóðasamstarfi víða. Ég er mjög hlynnt Norðurlandasamstarfi, norðurslóðasamstarfi. Ég er bara hlynnt öllu alþjóðasamstarfi, ég held að það bæti okkur allan daginn. En ég vil segja þetta: Það sem mun breytast — ef Ísland verður umsóknarríki aftur þá verður það þannig að í störfum í utanríkisþjónustu mun Ísland þurfa að eiga samráðsfundi með Evrópusambandinu og umsóknarríkjum alla daga þar sem stefnan yrði samræmd. Þetta er áður. Þetta væri þegar aðlögunarviðræðurnar væru í gangi, þannig að það breytist strax.