157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[11:51]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir virkilega góða ræðu sem byggir á ákveðnum raunveruleika sem stundum skortir í þennan sal, tengingu við daglegt líf Íslendinga. En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um tengist atkvæðagreiðslunni 29. ágúst í ár. Ég gæti verið með ótal spurningar en fæ mögulega bara að bera fram tvær hér. Í þingsályktunartillögu meiri hlutans og hæstv. ráðherra kemur fram, með leyfi forseta:

„Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“

Hér er verið að segja, í þingsályktunartillögunni sjálfri, að ef já verður ofan á í lok ágúst þá muni aðlögunarviðræður hefjast. Og það er stór munur á því að fara í aðlögunarviðræður eða einhvers konar aðrar viðræður.

Mig langar að spyrja hv. þingmann; það er kannski ósanngjarnt en ef hv. þingmaður gæti svarað því: Hvað mun það kosta íslenska ríkið og íslenska þjóð að fara í aðlögunarviðræður? Örugglega milljarða á milljarða ofan. En ég er ekki bara að spá í fjárhæðina. Hvaða tíma mun það taka frá öðrum málum, efnahagsmálum, menntamálum, heilbrigðismálum, samgöngumálum og atvinnumálum? Ég veit að þetta er stór spurning en getur hv. þingmaður varpað einhverju ljósi á þessa spurningu?