þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir prýðisgott andsvar. Ég held að við séum í meginmálinu sammála í okkar afstöðu til þess vandamáls sem við erum að ræða hér í dag. Hv. þingmaður spurði sérstaklega út í aðlögunarviðræðurnar og ef svarið yrði já, hvað þetta myndi kosta, hvaða tíma viðræður myndu taka frá öðrum málum. Fyrir það fyrsta þá tel ég að spurningin sé röng sem varpað er fram í þingsályktunartillögu meiri hlutans. Ég tel að spurningin eigi að vera: Viltu ganga í ESB? Já eða nei? Það finnst mér hreinskiptið og eðlilegt. Mér finnst þessi spurning enn röng þó að hún hafi að einhverju leyti verið lagfærð í meðförum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Varðandi kostnað og varðandi það hvaða tíma þetta mun taka frá öðrum málum þá eru aðlögunarviðræður risastórt mál. Allt stjórnkerfið, allt embættismannakerfið, í öllum ráðuneytum mun verða undirlagt þessum viðræðum. Allt annað verður lagt til hliðar. Væntanlega koma upp þær aðstæður eins og gerðist síðast að ráðuneytunum finnst þau þurfa að bæta í báknið og ráða fleira starfsfólk til að takast á hendur þessar aðlögunarviðræður. Það gerðist síðast og af hverju ætti það ekki að gerast nú? Það verður allt kerfið undirlagt á öllum sviðum og ég er ekki bara að tala um utanríkisþjónustuna heldur öll ráðuneyti.