157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:00]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Herra forseti. Það hefur gripið um sig gríðarleg hræðsla hjá minni hlutanum. Við gætum hugsanlega haft það betra. Hræðslan við það er svo mikil að menn eru farnir að hræðast eigin álfu. Hún er hræðileg, Evrópa er beinlínis hræðileg, álfan sem við búum í. [Hlátur í þingsal.] Þetta er hræðsluáróðurinn sem er haldið fram hér í ræðustól dag eftir dag af minni hlutanum, sem er hræddur. Sá sem hér stendur er liðsmaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Sú nefnd fékk það verkefni að fjalla um spurninguna sem bera á upp í þessu efni. Nefndin var strax tilbúin til að endurskoða spurninguna að kröfu minni hlutans. Við fengum til okkar allmarga umsagnaraðila til að ræða þetta efni og fikruðum okkur nær niðurstöðu. Einn af umsagnaraðilum var Arnar Þór Stefánsson lögmaður, sem var kallaður til af minni hlutanum og hann lagði blessun sína yfir þær spurningar sem voru til umræðu, annars vegar hvort ganga eigi til aðildar við Evrópusambandið, sem var spurning af hálfu minni hlutans, og svo hins vegar spurninguna af hálfu meiri hlutans sem var: Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, með svarinu já eða nei.

Nefndin þokaðist mjög nálægt niðurstöðu um að bera fram þessar tvær spurningar sem ein heild í samstöðu en hún brást á síðustu metrunum vegna einhverrar uppákomu í annarri nefnd. Þar af leiðandi lagði meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fram þessa spurningu: Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hvers vegna? Jú, sá sem hér stendur sagði ítrekað í umræðu um þetta mál að hún væri sagnfræðilega rétt. Það liggur fyrir í Íslandssögunni að Alþingi sótti um aðild á kjörtímabilinu 2009–2013. Það er sagnfræðileg staðreynd. Um það er ekki hægt að deila, um það er skrifað í Íslandssögunni. Þá voru aðildarviðræður hafnar, nokkrir kaflar opnaðir en svo þekkja menn hvernig lyktir þess máls urðu og enn þá er í rauninni deilt um það hvort viðræðunum hafi verið hætt eða ekki. Sá sem hér stendur er þeirrar skoðunar að fyrst Alþingi tók ekki ákvörðun um að hætta þá standi hún enn þá. Það var Alþingis og er Alþingis að taka þá ákvörðun. Alveg eins og það var Alþingis að hefja viðræður var það Alþingis að slíta viðræðum. Það getur framkvæmdarvaldið eitt og sér ekki gert. Það er Alþingis að taka slíka ákvörðun.

Herra forseti. Hvað felst í þessari spurningu: Á Ísland að hefja aðildarviðræður á ný við Evrópusambandið? Ég vil vekja athygli á því að hv. formaður Sjálfstæðisflokksins óskaði eftir því að Feneyjanefndin rýndi þessa spurningu. Niðurstaða Feneyjanefndarinnar var að fallast á spurninguna en með því skilyrði að það væri kristaltært að í spurningunni fælist ekki aðild heldur einvörðungu já- eða nei-svar við því hvort hefja ætti á ný viðræður. Um það verður spurt 29. ágúst. Það er ekki verið að spyrja að aðild, eins og Feneyjanefndin leggur ríka áherslu á, heldur einungis hvort hefja eigi viðræður á ný.

Og hvað er þá í húfi, herra forseti? Það geta verið gríðarlegir hagsmunir fólgnir í því fyrir atvinnulífið, félagasamtök og ekki síst heimilin í landinu, verslun og viðskipti, að Íslendingar skoði mögulegan samning við Evrópusambandið. Landsmenn eru nú þegar í nánum tengslum við Evrópu og evrópska markaði, í tengslum við Evrópska efnahagssamninginn, sem að mati þeirra sem voru á móti honum á sínum tíma er nú einhver veigamesti og mikilvægasti samningur sem gerður hefur verið við útlönd í Íslandssögunni, því allir vildu Lilju kveðið hafa.

Einir stærstu hagsmunirnir felast í betra verðlagi sem stafar af væntanlega betri og meiri samkeppni í stað fákeppni á Íslandi. Fákeppnin á Íslandi er að verða slík að það orð út af fyrir sig er rangnefni. Við erum komin út í örkeppni á íslenskum markaði vegna þess að ríkasta prósent þjóðarinnar er að eignast meira og minna öll fyrirtæki í landinu og heldur aftur af samkeppni, heldur með samráði, eins og dæmin sanna.

Þessu verður að linna og aðild að Evrópusambandinu, eftir atvikum, ég hef ekki séð samninginn enn þá, gæti aukið samkeppni í verslun og viðskiptum sem er gríðarlegt hagsmunamál fyrir einstaklinga í þessu landi vegna þess að við þekkjum afleiðingar fákeppninnar. Hún býr til spillingu.

En hvað getur þetta þýtt fyrir efnahag heimilanna? Sá sem hér stendur telur að tilraunin með krónuna sé fullreynd. Hún sveiflast eins og vindurinn yfir Íslandi og hefur lagt gríðarlegar klyfjar ekki bara á fyrirtæki landsins og félagasamtök heldur ekki síst heimilin í landinu. Ég get nefnt persónulegt dæmi af tveimur sonum mínum. Annar býr í Stokkhólmi og fékk húsnæðislán hjá sínum banka upp á um 3% vexti og hann sér hvernig hann borgar af því láni til næstu 25 ára. Þá lýkur uppgreiðslu lánsins. Annar sonur minn í Hafnarfirði veit ekkert hvort vaxtabyrði hans sé 250.000 þetta árið eða 450.000 og hann hefur ekki hugmynd um hvenær hann lýkur við að greiða af láninu. Er þetta það sem við ætlum að bjóða ungmennum og framtíð þessa lands upp á næstu aldirnar? Eða viljum við skoða þann möguleika að Íslendingar búi við svipað vaxtaumhverfi og aðrar þjóðir í Evrópu? Vextir á Íslandi eru þrefalt hærri en almennt gerist í viðmiðunarlöndum okkar í álfunni.

Minni hlutinn á Alþingi er logandi hræddur við þennan kost, að vaxtabyrði lækki á Íslandi. Hún er 100 milljörðum meiri á ári en hún gæti verið eða sem nemur 2–3 milljónum á hvert heimili í landinu á ári. Það er líka búið að reikna það út, herra forseti, að kostnaður af krónunni á hverju einasta ári fyrir allt samfélagið á Íslandi er um 500 milljarðar á ári. Hreinn kostnaður af krónunni á hverju einasta ári er um 500 milljarðar, þar á meðal er vaxtakostnaður ríkisins 80 milljarðar. Það væri hægt að lækka vaxtakostnað ríkisins um 8 milljarða á hverju einasta ári með því að taka upp annan gjaldmiðil en þann vonlausa miðil sem krónan er. Hugsið ykkur hvað hann er slappur. Hann er það slappur að mynt sem farið er með til Bretlands og sett í söfnunarkassa er send aftur heim til Íslands. Hún er send aftur heim til Íslands vegna þess að ekki er hægt að nota þennan gjaldmiðil í nokkru öðru landi en við ysta haf, enda hafa útgerðir og stór atvinnufyrirtæki löngu flúið þennan gjaldmiðil en almenningur, alþýðan, almúginn, heimilin í landinu sitja uppi með þennan gjaldmiðil og hörmulegar afleiðingar hans. Almenningur veit ekkert hvað hann þarf að borga af þessum gjaldmiðli inn í framtíðina, hann hefur ekki hugmynd um það. Hann hefur ekki hugmynd um það hvenær hann getur klárað húsnæðislán sín, ekki hugmynd um það.

Minni hlutinn á Alþingi segir: Gott og vel, þetta er betri kostur en að vita hvað maður borgar af húsnæðisláninu sínu og hvenær því lýkur, eins og í tilviki sonar míns í Svíþjóð. Meginspurningin er þessi, herra forseti: Gætum við haft það betra? Ef við segjum já 29. ágúst, sem ég vona, þá hefjast samningaviðræður, og vel að merkja, ég hef ekki samið, ég veit ekki hvað kemur út úr samningaviðræðum. Minni hlutinn telur sig vera búinn að semja og veit hvað hann hefur væntanlega út úr samningsgerðinni. Ég hef ekki séð það plagg að vísu enn þá en samningaviðræður hefjast og þá förum við vitaskuld með kassann fram og gerum okkar ýtrustu kröfur um að samningurinn falli að íslensku hagkerfi og íslenskum hagsmunum í þaula. Auðvitað förum við fram. Við ætlum ekki, eins og mér heyrist á stjórnarandstöðunni, að tapa leiknum fyrir fram, að tapa leiknum 14-2 fyrir fram. Við munum fara í þessa samningsgerð af fullu sjálfstrausti og leita eftir því að samningurinn taki tillit til helstu hagsmuna Íslands hvað varðar sjávarútveg, landbúnað, samkeppni og neytendavernd. Ég gæti haldið áfram að telja upp fjöldamarga aðra þætti en við hljótum að ganga til þessara samninga með fullri reisn og ætlast til þess að fá eins góðan samning og hugsast getur, ella væri betra heima setið. Það verður svo í lok samningsgerðarinnar sem við tökum afstöðu og sá sem hér stendur hefur engan áhuga á að gjalda jáyrði við lélegum samningi. Hann er að hugsa um hagsmuni Íslands. Gætum við haft það betra? Geta fjölskyldur í landinu, heimilin í landinu, haft það betra með samningsgerð við Evrópusambandið?

Það er búið að þvæla þessu máli fram og til baka hér í pontu af minni hlutanum. Ég ætla að nefna eitt dæmi, hæstv. forseti. Formaður Sjálfstæðisflokksins, sem einmitt lagði fram spurninguna, bað Feneyjanefndina um að rýna spurninguna og hvernig hún ætti að vera, fékk svarið um að spurningin yrði að vera: Á Ísland að hefja viðræður við Evrópusambandið á ný, en það væri skilyrði fyrir spurningunni að það væri kristaltært að ekki væri um aðild að ræða heldur vilja, hugsanlegan vilja til samningsgerðar. Sá sami hv. formaður Sjálfstæðisflokksins kemur svo hér í pontu í gær og segir, hafandi spurt Feneyjanefndina og fengið svarið: Væri ekki bara best að spyrja: Á Ísland að ganga í Evrópusambandið? Hún er nýbúin að fá svar frá Feneyjanefndinni um að það væri ekki möguleiki á því að hafa spurninguna í þá veru. Hvers vegna? Jú, í mínu tilviki hef ég aldrei haft áhuga á að fara í hjónaband með konu sem ég hef ekki séð og kynnst. [Hlátur í þingsal.] E.t.v. hefur minni hlutinn áhuga á því, e.t.v. hefur minni hlutinn áhuga á því að fara í hjónaband með konu sem hann hefur aldrei séð. (Gripið fram í: Það má skoða það. Kíkja í pakkann. ) En við hljótum, ef við segjum já 29. ágúst, að hefja samningsgerð og sjá hvað kemur út úr henni. Hvernig í ósköpunum eigum við að bera upp þá spurningu við þjóðina: Viltu ganga í Evrópusambandið, án þess að forsendan liggi fyrir? Hvers lags hugmyndaflug er þetta hjá minni hlutanum, að spyrja spurningar sem enginn hefur forsendur til að svara? Er þetta gáfulegt? Nei, þetta er heimskulegt. Þetta er beinlínis heimskulegt. Við verðum að hafa spurningu sem fólk bæði skilur og veit að hefur þær afleiðingar að ef það segir já þá verður farið út í samningsgerð og séð hverju væri áorkað í þeim samningaviðræðum og svo verður eðlilega afstaða tekin til þess hvort menn vilji ganga í Evrópusambandið.

Herra forseti. Það er margt í mörgu og sá sem hér stendur hefur lesið sér ágætlega til um þetta efni á síðustu árum og áratugum, bæði sem þingmaður og ritstjóri miðla og fréttastjóri og fylgst með þessari umræðu um árabil. Við þekkjum söguna. Hún er ekkert endilega hagstæð þeim sem eru alltaf á móti framförum á Íslandi. Hún er ekkert sérstaklega hagstæð fyrir það fólk og fyrir þá stjórnmálaforingja sem hafa staðið hér í pontu og goldið varhuga við inngöngu í Atlantshafsbandalagið, það væru landráðabrigsl, goldið varhuga við fríverslunarsamningi EFTA, það væru landráðabrigsl, myndi færa Ísland aftur um aldir og goldið varhuga enn einu sinni við EES-samningnum. Við þekkjum þessi ummæli. Hvernig hafa þau elst? Hvernig hafa þau elst í Íslandssögunni? Þau hafa elst hörmulega. Var ekki sagt í þessum ræðustól fyrir allmörgum áratugum að við myndum glata yfirráðum okkar yfir hafsvæðinu ef við gengjum í Evrópska efnahagssamninginn, við myndum glata orkunni, hér færi atvinnulífið marga áratugi aftur í tímann? Akkúrat, herra forseti, hefur hið þveröfuga gerst.

Ég hef tekið fjöldamörg viðtöl við forráðamenn í atvinnulífinu sem segja að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið sé mesti happafengur fyrir atvinnulífið í landinu sem sögur fara af. Hvers vegna? Jú, hann veitir okkur beinan aðgang að bestu mörkuðum í heimi, þar á meðal í Evrópu, þangað sem við flytjum meira og minna allan okkar útflutning, 70–80%, og kaupum eiginlega mest frá, á að giska sama hlutfall, besti samningur sem hefur gert það að verkum að sjávarútvegurinn hefur risið úr öskustó og er orðinn gríðarlega öflugur á Íslandi. Svarið er frjáls viðskipti og óheftur markaðsaðgangur. Þetta segja forstjórar sjávarútvegsfyrirtækjanna á landinu hringinn í kringum landið, sem eru reyndar, vel að merkja, eins og ég gat um áðan, búnir að skipta yfir í evru af augljósum ástæðum.

Sá sem hér stendur telur jafnframt að möguleikar landbúnaðarins með inngöngu í Evrópusambandið séu gríðarlegir. Þar kemur til vaxtastigið öðru fremur. Vaxtabyrði landbúnaðarins er hræðileg. Hún er gríðarlegar klyfjar á rekstur hefðbundinna sauðfjár- og kúabúa og annarra búa á landinu. Það þekkja allir sem vita eitthvað til landbúnaðar. Sá sem hér stendur hefur talað við fjölda bænda sem hvísla í hljóði að ef það væri eitt öðru fremur sem þyrfti að laga í þeirra rekstri þá væri það vaxtabyrðin. Eigum við að koma til móts við bændur í þeim efnum? Ég segi já. Reynslan frá Finnlandi og Svíþjóð er eftir atvikum góð. Nýliðunarstyrkir hafa hjálpað landbúnaði gríðarlega mikið í Finnlandi vegna þess að landbúnaður þar er skilgreindur á jaðarsvæði, á heimskautasvæði, og fær fyrir vikið meiri stuðning en ella frá landbúnaðarkerfi Evrópusambandsins, vegna staðsetningar sinnar, vegna erfiðra skilyrða. Þetta hafa finnskir bændur séð í sínum rekstri og eftir atvikum Svíar líka. Allur íslenskur landbúnaður yrði aftur á móti skilgreindur á þessu jaðarsvæði, ekki bara hluti eins og í Finnlandi og Svíþjóð heldur allur. Vaxtabyrðin myndi ekki einasta lækka í landbúnaði hér á landi heldur yrði einnig tekið tillit til þeirrar sérstöðu sem er í landbúnaði hér á landi, svo sem varðandi íslensku kúna, sauðféð, hundinn eftir atvikum og jafnvel yrði horft til þess að efla menningarþátt landbúnaðar við ysta haf ef af samningum verður.

Fyrir heimilin í landinu er þetta besti kostur sem hugsast getur. Heimilin hafa verið barin sundur og saman með krónunni í áratugi og heimilin vita ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér með þennan gjaldmiðil, sem vel að merkja þeir ríkustu í landinu hafa hent út af borðinu sínu og eru löngu byrjaðir að nota annan gjaldmiðil af augljósum ástæðum eins og allir hér í salnum þekkja.

Við þurfum líka að horfa til þess að við hefðum skjól af því að fara í tollasamvinnu við Evrópusambandið, ganga í tollabandalagið í Evrópu sem er augljós afleiðing af inngöngu í Evrópusambandið. Hvað segja Danir, sem urðu fyrir árás Bandaríkjamanna á dögunum sem seildust eftir yfirráðum á Grænlandi? Þeir sögðu á fundi á Kýpur á dögunum, nánar tiltekið utanríkisráðherra þeirra, að þeir þökkuðu Evrópusambandinu fyrir þá vörn sem sambandið hafði uppi og hjálpaði Dönum. Þeir hefðu verið berskjaldaðir ef þeir hefðu verið utan Evrópusambandsins í þeim slag sem þá stóð yfir við Bandaríkin. Ég tel að tollabandalagið við Evrópusambandið muni veita okkur skjól, og talandi um skjól, sömuleiðis í varnar- og öryggismálum og fyrir þeim fjölþáttaógnum sem við blasa á komandi árum og eru nú þegar farnar að ógna öryggi hér á Íslandi sem annars staðar.

Að öllu samanlögðu, herra forseti, þá finnst mér spurningin vera þessi og ég beini henni til þjóðarinnar og þeirra sem eru að hlusta: Gætum við haft það betra? Um það snýst spurningin. Gætum við haft það betra? Viljum við fá svar við því eða viljum við ekki fá svar við því? Um það snýst þetta mál.