þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Mig langar mjög mikið til að reyna að átta mig á því eða að fá svar frá hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni um hvort hann átti sig á hvað felst í þessum samningaviðræðum. Telur hv. þingmaður að Ísland geti fengið varanlegar undanþágur? Vissulega erum við ekki lítil í okkur og getum verið með kassann úti, en veit hv. þingmaður hvað Evrópusambandið er? Veit hann það? Ég hefði haldið það. Ég skil það alveg að hv. þingmaður vilji fara í Evrópusambandið. Ég vil ekki fara þangað. Ég tel hagsmunum okkar miklu betur borgið utan þess en við vitum hvar Samfylkingin stendur. Málið er það að það liggur fyrir að á tíunda áratugnum voru nokkrar varanlegar undanþágur veittar. Undanfarna áratugi hefur Evrópusambandið verið mjög skýrt með það að þeir eru ekki að veita varanlegar undanþágur. Hins vegar snúast samningaviðræðurnar um það hvernig og á hve löngum tíma við ætlum að aðlaga okkur að Evrópusambandinu. Því spyr ég: Er hv. þingmaður sáttur við það að fá bara tímabundnar aðlaganir eða er hv. þingmaður að gera sér vonir um það að Ísland eitt landa fái varanlegar undanþágur sem önnur lönd fá ekki? Þetta er lykilpunkturinn. Þetta er það sem við þurfum að fá svar við og því spyr ég varðandi auðlindir landsins: Finnst hv. þingmanni ásættanlegt að fá ekki varanlegar undanþágur og veit hv. þingmaður að ekkert ríki hefur fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, ekkert, hvorki á tíunda áratugnum né á undanförnum áratugum?