157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:22]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa spurningu frá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Ég lagði áherslu á það í ræðu minni að við förum út í þessar samningaviðræður, ef af verður, með kassann úti og munum sækja um það, krefjast þess að við fáum varanlegar undanþágur vegna þess efnahagsumhverfis sem Íslendingar búa við. Það hefur verið á það bent í umræðunni að þegar kemur að sjávarútvegi þá verði oft horft til efnahagslegs stöðugleika. Við getum ekki ógnað þeim efnahagslega stöðugleika sem við byggjum fyrst og fremst á, sjávarútvegi og eftir atvikum landbúnaðinum sömuleiðis. Þess vegna munum við af fremsta megni sækja fram með varanlegar undanþágur í huga vegna hnattstöðu, vegna þess t.d. að við eigum enga sameiginlega fiskstofna með Evrópusambandslöndunum, enga. Við höfum einn sameiginlegan stofn með Norðmönnum og þeir eru, vel að merkja, ekki í Evrópusambandinu, og það er Norður-Atlantshafssíldin. Þetta er skýrt. Við förum ekki í þessar samningaviðræður með leikinn fyrir fram tapaðan, alls ekki.