157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:23]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Mér þykir þetta merki um blekkingar. (Gripið fram í.) Fara með kassann út? Já, auðvitað. Hv. þingmaður svarar því ekki: Finnst honum raunhæft að Ísland eitt ríkja fái fullt af varanlegum undanþágum þegar það er ekki verið að veita varanlegar undanþágur? Getum við ekki bara verið heiðarleg með það að samningaviðræðurnar snúast um aðlögun, á hvaða tíma við aðlögum okkur að Evrópusambandinu? Hvað heldur hv. þingmaður að Ísland fái margar varanlegar undanþágur? Eigum við séns á einni, fleirum? Og hvað heldur hv. þingmaður um hin 27 ríkin sem öll þurfa að samþykkja hverja einustu varanlegu undanþágu, öll ríkin? Hvaða líkur telur hv. þingmaður á að aðrar þjóðir, t.d. fiskveiðiþjóðir, muni samþykkja að Ísland eitt ríkja fái eitthvað sem þau fá ekki? Og af hverju ættu þau að samþykkja það nema mögulega af því að Ísland sé þá að fara að borga miklu meira inn heldur en það er að taka út?