þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég byrja á að þakka hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni fyrir sína ræðu. (SER: Góðu ræðu. )Ég veit ekki, ég á erfitt með margt þar og tek fram að að mínu mati er Evrópusambandið ekki hræðilegt en það eru ekki hagsmunir Íslendinga að ganga í það. Spurningin mín til hv. þingmannsins varðar það sem kom fram í óundirbúnum fyrirspurnum þar sem hæstv. ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson svaraði fyrirspurn frá þingflokksformanni Miðflokksins og hann svaraði, og það er það sem málið snýr að, að verði ríkisstjórnarflokkar ekki sáttir við þann aðildarsamning við Evrópusambandið sem kemur úr mögulegum viðræðum við sambandið verður samningurinn ekki lagður fyrir þjóðina í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Það þýðir að það verður greitt atkvæði um að ganga til viðræðna við Evrópusambandið, ef það færi svo að kosningin yrði já í haust, síðan leggur ríkisstjórnin fram samningsmarkmið og fer í aðildarviðræður og ef ríkisstjórnin er ekki sátt við hvað kemur út um aðildarviðræður verður það ekki birt þjóðinni. Þetta er það sem hæstv. ráðherra svaraði hér áðan í óundirbúnum fyrirspurnum. Þess vegna er það einföld spurning til hv. þingmanns: Hvað finnst hv. þingmanni um þetta svar hæstv. ráðherra hér áðan varðandi þennan þátt máls, sem er mjög mikilvægur? Það er þjóðaratkvæðagreiðsla. Það verður já, sem ég ætla að vona að verði ekki. Það er farið í aðildarviðræður. Heyrðu, ríkisstjórnin er ekki sátt, meiri hlutinn er ekki sáttur, við það samkomulag sem yrði gert í aðildarviðræðunum og það á ekki að birta þann samning sem liggur fyrir. Er þetta ekki hálffurðuleg og ólýðræðisleg nálgun af hálfu ráðherrans sem hann boðaði hér áðan í óundirbúnum fyrirspurnum?