þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Það ber að þakka þessa spurningu frá hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni. Minn skilningur, og nú tek ég strax fram að sá sem hér stendur heyrði ekki hæstv. ráðherra svara hér fyrr í dag, er og hefur alltaf verið sá að þetta eru tvær spurningar. Ferlið er í tveimur atrennum. Fyrst spyrjum við hvort þjóðin vilji hefja á ný aðildarviðræður. Svo, ef svarið reynist vera já, þá förum við í samningsgerð fullir sjálfstrausts og ætlum að reyna okkar besta, fá eins góðan samning og hægt er og svara spurningunni: Gætum við haft það betra eða ekki? Það gæti farið svo, hv. þingmaður, að í samningsferlinu verðum við strand. Það er alveg möguleiki að svo mikið beri í milli að samningar strandi. Það er einn möguleiki. En ef samningur næst þá ber okkur, eins og álit meiri hluta utanríkismálanefndar segir, að bera hann aftur undir þjóðina ef samningar verða í höfn.