157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:30]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Þá er það bara ef samningar nást. En er það ekki lýðræðislegt í svona stóru máli, mögulega því stærsta á þessu kjörtímabili og þó að yfir lengra tímabil væri leitað, að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið ef það fer þannig eftir þjóðaratkvæðagreiðslu í haust, að birta alltaf hvað kemur út úr þeim viðræðum? Er það ekki lýðræðislegt fyrir alla frekari umræðu sem gæti orðið í málinu að þjóðin hafi vitneskju um hvað er verið að gera, um hvað málið snýst og sé vel upplýst um hvað þessi stóra mynd fjallar? Það er mat þess sem hér stendur að það sé mikilvægt að halda þessu ferli gegnsæju þannig að almenningur í landinu sé með. Það hlýtur að vera grunnforsenda í öllu málinu. Ég sé að ég hef ekki tíma, herra forseti, til að spyrja frekar um þá punkta sem ég ætlaði kannski helst að spyrja um. En þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir allt ferli þessara viðræðna og skilning þingmannsins á þessu. Er hann sammála því sem ráðherrann sagði áðan í óundirbúnum fyrirspurnum eða ósammála?