þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka seinni spurningu frá hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni. Sá sem hér stendur er ekki sérfræðingur í samningatækni og veit í sjálfu sér ekki hvernig ber að upplýsa um inntak samningsgerðarinnar skref fyrir skref. En sá sem hér stendur hefur hins vegar alltaf, og ekki síst í sínu fyrra starfi sem blaðamaður, fréttastjóri og ritstjóri, verið talsmaður upplýsingar; að allt liggi fyrir uppi á borðum. Ég tel vera brag á því að eftir að hver samningskafli, ef samningaviðræðum verður, verði upplýstur jafnóðum og honum er lokið; þá smám saman upplýsist þjóðin í stað þess að fá allt í fangið í lokin. Ég tel vera ágætan brag á því en ég tek það fram að sá sem hér stendur er ekki sérstakur sérfræðingur í samningagerð og þess vegna veit hann ekki í sjálfu sér hvort þetta er viturlegt eða ekki. En almennt séð finnst mér að upplýsingar eigi að liggja uppi á borðum.