þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Hver hefði trúað því að þessi umræða gæti orðið svona stórskemmtileg? Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég átta mig á því hvers vegna hv. þingmaður hefur oft og tíðum hlotið nafnbótina skáld því að það sem ég heyrði þegar ég hlustaði á ræðuna var að stórum hluta vel fram settur og fluttur skáldskapur. Mig langar að spyrja sérstaklega út í eitt, það var ofsalega margt í ræðunni sem mig langar að spyrja út í en ég fæ afar nauman tíma til að eiga samskipti við hv. þingmann, af því að það kom meira að segja nýtt hugtak inn í umræðuna sem við höfum ekki verið að glíma við fram að þessu en þökk sé hv. þingmanni erum við farin að glíma við það núna, og það er hugtakið langvarandi undanþágur. Ég óska eftir því að hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson, burt séð frá innblásinni ræðu áðan, útskýri fyrir mér og þingheimi öllum og þar með þjóðinni allri hver munurinn er að hans mati á langvarandi undanþágum og hins vegar varanlegum undanþágum frá stofnsáttmála Evrópusambandsins.