þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Hv. þingmaður kýs að gera lítið úr skáldum sem hafa eflt menningu þessa lands og gert okkur að stórþjóð í bókmenntaheiminum á síðustu árum og áratugum og öldum og farið mikinn í einmitt Evrópu og prýtt hana fegurstu orðum. Hann kýs, með hrossahlátri, að gera lítið úr skáldum. En undanþágur eru samningsatriði. Við förum með kassann út í þessar viðræður og freistum þess að fá varanlegar undanþágur og eftir atvikum undanþágur frá okkar helstu hagsmunum sem varða sjávarútveg, landbúnað, samkeppni, neytendamál o.s.frv. og ekki síst á sviði nýsköpunar og vísinda. Þetta verður rætt í samningsgerðinni. Ég hef ekki séð samninginn. Það er ekki byrjað að semja. Minni hlutinn hefur væntanlega séð samninginn miðað við hans málflutning. (Gripið fram í.) Fulltrúar Evrópusambandsins hafa nú þegar sagt að undanþágur séu í boði og þau orð veit ég að munu standa. Ég hef ekki orðið vitni að falskenndri umræðu forsvarsmanna Evrópusambandsins í þessari umræðu hingað til.