157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:36]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég kannast nú ekki við að hafa gert lítið úr skáldum. Ég tók meira að segja fram hér í fyrri spurningu minni að þetta hefði verið ákaflega vel flutt. En ég spurði spurningar og við henni kom ekkert svar, það komu bara bollaleggingar um eitthvað allt annað en spurningin var í eðli sínu sáraeinföld. Ég ætla að bæta við, í ljósi þess hvernig svarið hljómaði, hvort hv. þingmaður þekki til og viti hvernig Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, svaraði fyrir núna nákvæmlega ári og einum degi síðan í viðtali við norska ríkisútvarpið um það hvernig slíkar aðlaganir færu fram og hversu hratt þær gengju fyrir sig. Þá var svarið, með leyfi forseta: Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt ríkið kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. Markmið viðræðnanna er að umsóknarríki taki upp regluverkið eins og það leggur sig. Ég hafði hug á því að vitna í fleiri gögn en mér vinnst ekki tími til þess, hv. þingmaður. En Bretar hafa fengið sama svar núna; ef þeim muni snúast hugur þá verði ekkert slíkt í boði. Þess vegna kaus ég að nota orðið skáld, ekki til að gera lítið úr öllum þeim sem ég hef notið verka eftir, hvort sem það eru bókmenntir, tónlist eða hvað það er. Ég var einungis (Forseti hringir.) að vísa til þess að maðurinn sem ég er að eiga samskipti við, (Gripið fram í.) hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson, hefur oft og tíðum fengið nafnbótina skáld.