þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Hræðsla minni hlutans er með þeim hætti að ég er ekki einasta sakaður um að vera skáld heldur líka leikari. Ég hef reyndar stigið á svið sem leikari í Menntaskólanum á Akureyri. Ég held að ég hafi staðið mig ágætlega þannig að það er í ferilskránni.
Íslensk stjórnsýsla er vel mönnuð. Ég þekki það úr fyrra starfi mínu sem blaðamaður, fréttastjóri og ritstjóri að íslensk stjórnsýsla er eftir atvikum og stærð mjög sterk og hefur sýnt það á fyrri stigum að hún gat komið sterkum samningi í höfn þegar við gerðumst aðilar að Fríverslunarsamtökum Evrópu. Sú saga er sigursaga og hana ber að þakka framsýnum stjórnmálamönnum eins og Bjarna Benediktssyni, þáverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, sem sagði að sterkt samband við Evrópu væri lykilatriði fyrir Íslendinga og íslenska hagsmuni, og sömuleiðis Gylfa Þ. Gíslasyni, þáverandi formanni Alþýðuflokksins. Þessir tveir menn horfðu til framtíðar. Það sama gerðist í EES-samningnum. Þá stóð íslensk stjórnsýsla sig með fullum ágætum. Það er sagan.