157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:42]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er ágætt að hér á sér stað algjör afhjúpun. Hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur ekki unnið sína heimavinnu eins og bara fæstir þingmenn meiri hlutans. Það kemur fram í gögnum um ESB-umsókn á sínum tíma, svo ég vísi í það með leyfi herra forseta, að íslensk stjórnsýsla sé lítil og allt of lítil til að ráða við þær skuldbindingar sem fylgja inngöngu í sambandið og að til mikillar stofnanauppbyggingar þurfi að koma.

Hér er alger afhjúpun í gangi. Bæði hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir og hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson hafa ekki hugmynd um þetta en eru tilbúin að fabúlera hitt og þetta, gera sér enga grein fyrir þeim kostnaði eða þeim tíma sem fylgir þessum aðlögunarviðræðum. Þannig að það er í raun ótrúlegt að menn fari fram með þessum málflutningi og tali síðan um hræðslu því að þekkingarleysið er algjört.