157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:43]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Enn er hoggið í sama knérunn. Ég er ekki aðeins skáld, leikari, ég er fáviti sömuleiðis að mati hv. þm. Jóns Péturs Zimsens sem sakar mig um algera fávisku og að þekkja ekkert til þessara mála. Ég er búinn að fjalla um þessi mál í ræðu og riti í áratugi sem blaðamaður, fréttastjóri, ritstjóri og þingmaður sömuleiðis, bæði á kjörtímabilinu þegar við sóttum í fyrra sinn um og nú einnig á því seinna. Íslensk stjórnsýsla hefur sýnt og sannað í erfiðum samningaviðræðum að hún getur staðið sig. Auðvitað er hún fámenn. Hvernig væri hægt að hugsa sér að íslensk stjórnsýsla væri jafn fjölmenn og gengur og gerist annars staðar í Evrópu? Við erum varla 400.000 manna þjóð. Auðvitað er íslenska stjórnsýslan fámenn en hún hefur sýnt það endurtekið að hún er vaxin til þessara verka og hv. þingmaður þekkir það í allri þeirri reglugerð sem kemur nú, sumir segja á færibandi, frá Evrópusambandinu. Við höfum verið í fullum færum til að meta hana með umsagnaraðilum í nefndum þingsins og eftir atvikum með framkvæmdarvaldinu. Við höfum verið í fullum færum til þess. Eða heldur hv. þingmaður að við höfum (Forseti hringir.) staðið okkur illa á þeirri vakt að innleiða evrópskt regluverk á síðustu árum? Höfum við staðið okkur illa? Það væri kannski gott að fá svar við þeirri spurningu.

(Forseti (BergÓ): Til þess gefst ekki tækifæri í þessum andsvörum.)