157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:04]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Herra forseti. Það er gott að sjá hæstv. forseta mættan í sitt sæti, enda eini stjórnarliðinn hér á hæðinni. Ef maður lítur yfir þingsalinn þá er ekki marga stjórnarliða að sjá, akkúrat engan, og engan ráðherra, þegar við ræðum mál sem skiptir okkur Íslendinga verulega miklu máli til allrar framtíðar. Það er, verð ég að segja, sérstakt að metnaðurinn hjá stjórnarliðinu sé ekki meiri en þessi, að það sést ekki einn þingmaður úr þeirra hópi hér. Ég gerði það að gamni mínu hér fyrir ræðuna að rölta um hæðina á þessu húsi og þar var heldur engan að sjá, hvorki frammi né hér inni í sal, þannig að það sé sagt og menn sjái hvar metnaðurinn liggur hjá stjórnarliðinu í þessu stóra máli. En mig langar að byrja á því að spyrja í þessari seinni ræðu minni um þetta mál: Skiptir það einhverju máli hverju við svörum í lok ágúst? Já eða nei? Ég vil hvetja alla Íslendinga til að kynna sér málin vel, hvað já þýðir og hvað nei þýðir, og reyna að kafa eins djúpt og menn geta í málefnin. Fólk heyrir það hér í pontu að við sjáum málið út frá ansi ólíkum sjónarhornum, stjórn og stjórnarandstaða. Á endanum, þegar valdið er komið til kjósenda, þá liggur valdið þar, og ábyrgðin að sjálfsögðu líka. Það skiptir því máli að hver og einn, hvað sem hann kýs, kjósi út frá sem bestu, réttustu og mestu upplýsingum sem kostur er á.

Mig langar að byrja á því að vísa í þingsályktunartillögu hæstv. ráðherra, með leyfi herra forseta:

„Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum […]“

Þetta stendur í þingsályktunartillögunni sjálfri. Þetta heitir á íslensku að það eru reglur í sambandinu sem Ísland þarf að gangast við.

Þetta segir Marta Kos líka, sem er stækkunarstjóri ESB, þ.e. að Ísland þurfi að taka regluverkið upp eins og það leggur sig. Eðlilega. Hér er ríkjasamband sem er búið að setja sér ákveðnar samræmdar reglur sem menn þurfa að lúta og að sjálfsögðu fylgja menn þeim. Það hefur komið fram hér í umræðunni að ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur frá regluverki ESB. Um þetta er ekki deilt. Menn eru að vísa hér til löngu liðinna atburða en það eru ríki sem voru í Evrópusambandinu á þeim tíma sem gátu fengið einhvers konar undanþágur, enda voru þau þá með ákveðið vogarafl gegn sambandinu og menn lögðu ekki í að snúast gegn þeim þjóðum. Ekkert umsóknarríki hefur þannig fengið varanlegar undanþágur gagnvart regluverki ESB. Ekkert. Það er mikilvægt að fólk átti sig á því.

Hér vitnaði hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson áðan í embættismenn ESB, að þeir segðu nú líklega ekki ósatt. Ég tek undir það því að þeir voru löngu búnir að segja það, áður en stjórnarliðar viðurkenndu það, að þetta væru ekki aðildarviðræður heldur aðlögunarviðræður sem yrði farið í ef menn segðu já í lok ágúst. Þetta kom kirfilega fram í máli og textum embættismanna ESB, þ.e. að eina leiðin fyrir ríki til að ganga inn í ESB væri að undirgangast regluverk þess. Vissulega geta verið tímabundnar undanþágur gagnvart einhverju, eða aðlögun. Það er stundum þannig að einhverjar þjóðir hlaupa á það með skammtímahagsmuni í huga. Írar urðu hressilega varir við það varðandi þeirra kvótamál í fiskveiðum. Menn héldu að eitthvað sem var sagt að yrði líklega aldrei tekið af þeim var síðan tekið af þeim. Það fór ekki vel með sjávarbyggðir Íra og menn voru ekki sáttir við það, eðlilega. Það þarf að vera alveg á hreinu að menn átti sig á því — hvað sem þjóðin vill, því að ekki ætlum við í Sjálfstæðisflokknum að setja okkur upp á móti vilja þjóðarinnar, við verðum bara öll að sætta okkur við niðurstöðuna hver sem hún verður í lok ágúst. Þá skiptir máli að það komi ekki einhver svona reikningur í bakið á öðrum hvorum hópnum, já- eða nei-hópnum, sem sé þess eðlis að fólk segi: Já, ég áttaði mig bara ekki á þessu, ég hefði átt að kynna mér þetta betur. Reynið að kynna ykkur þetta eins vel og þið getið. Ég átta mig á því að þetta er þungt og þetta er flókið en skoðið það sem ESB segir, skoðið það sem hefur komið fram hér í þingsal.

Nú eru menn hættir að tala um að kíkja í pakkann, ég vona að fólk taki eftir því að meiri hlutinn er hættur að tala um það. Það er nefnilega enginn pakki til að kíkja í, við vitum nákvæmlega hvað sambandið býður upp á. Það er ekkert allt hræðilegt við Evrópusambandið en það er ekki tilviljun að ríki á borð við Noreg og Sviss og Ísland, ríkustu ríki Evrópu, eru ekki í sambandinu. Og það felst í því mikill styrkur fyrir okkur Íslendinga að standa utan sambandsins, vera með EES-samninginn og geta síðan samið um fríverslunarsamninga við hinar og þessar þjóðir um allan heim. Við sjáum hvað það hefur gagnast okkur vel. Við erum að gera samninga við Kína, Taívan, Bandaríkin og núna eru það Indland og fleiri ríki sem við gætum gert sambærilega samninga við. Ísland er að semja beint við þessi ríki. Í Evrópusambandinu væri þetta á allt annan veg. Að ganga í Evrópusambandið getur sett samskipti okkar við þessi ríki í uppnám. Ef við förum inn í Evrópusambandið þá erum við hluti af því og þeim samningum sem það samband fer í gegnum. Við sáum að Bandaríkjamenn settu t.d. hærri tolla á Evrópusambandið en Ísland.

Við megum ekki gleyma því hvað það er sem Evrópusambandið vill; hvers vegna það vill svona ólmt fá Ísland inn til sín. Það eru nokkrir þættir og ég get nefnt nokkra hér — tíminn líður reyndar hratt og þetta rétt nær að gára yfirborðið. Evrópusambandið vill stækka yfirráða- og áhrifasvæði sitt á Norður-Atlantshafi og Ísland hefur ótrúlega sterka stöðu hvað varðar legu landsins varðandi flutninga, hernaðarlega stöðu og aðra stöðu. Við erum á frábærum stað en það að ganga í ESB getur auðveldlega sett samninga okkar við Bandaríkin í uppnám. Við eigum ein verðmætustu fiskimið í heimi og það er alveg ljóst að Evrópusambandið mun ekki gefa það eftir að við fáum engar varanlegar undanþágur hvað þau mál varðar; þetta er ákveðið krúnudjásn sem Evrópusambandið girnist. Það er þrá hjá Evrópusambandinu eftir ríki sem borgar meira en það þiggur frá sambandinu. Þau ríki sem hafa gengið í sambandið síðastliðin ár eru öll frekar þiggjendur en greiðendur inn í sambandið. Þess vegna er áhugi Evrópusambandsins svona mikill á Íslandi. Ísland kæmi eins og ferskur andblær inn í sambandið sem nettóplús-greiðandi inn í sambandið. Það eitt ætti að vekja okkur til umhugsunar og hringja ákveðnum viðvörunarbjöllum. Hvernig höfum við það á Íslandi? Mun ástandið batna við að ganga í Evrópusambandið? Mun matvælaöryggi aukast við að ganga í Evrópusambandið?

Tími minn er búinn, herra forseti. Ég get ekki talað meira að sinni. Ég fer mögulega í aðra ræðu en ég hvet almenning til að hlusta vel, herra forseti, á það sem næstu ræðumenn hafa að segja, hvort sem þeir vilja já eða nei, og taka síðan upplýsta afstöðu í lok ágúst. Og vonandi, fyrir Ísland og íslenska framtíð, verður það nei.