157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:15]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegi forseti. Síðari umræða um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB hófst núna um daginn. Við erum búin að ræða þetta hérna þessa viku; miðvikudag, fimmtudag og nú föstudag. Margt hefur þegar komið fram. Mörg sjónarmið hafa verið reifuð, bæði um stöðu Íslands í Evrópu og mögulegar aðildarviðræður við Evrópusambandið, um æskilega tímasetningu, lýðræðislegt gildi þjóðaratkvæðagreiðslu og um þá hagsmuni sem eru undir í málinu. Það er eðlilegt. Þetta er mál sem snertir framtíðarstöðu Íslands, sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar og grundvallarhagsmuni samfélagsins til langs tíma.

Einmitt þess vegna skiptir máli að við höldum rétt á málunum. Við eigum ekki að nálgast þetta mikilvæga og í raun alvarlega mál með slagorðum. Við megum ekki skipta þjóðinni upp í fylkingar og við eigum ekki að gera fólki upp skoðanir, hvorki þeim sem telja rétt að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið né þeim sem telja að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan sambandsins.

Við eigum að nálgast þetta mál af yfirvegun. Til að byrja með eigum við að spyrja hvað þjóðin er í raun og veru beðin um að samþykkja í haust. Við eigum að spyrja hvaða gögn liggja fyrir. Við eigum að spyrja um hvaða rauðu línur hafi verið dregnar. Við eigum að spyrja um hvaða hagsmunir séu undir og eigum við að spyrja hvort undirbúningur sé nægilega vandaður fyrir ákvörðun af þessari stærðargráðu því þetta mál er ekki lítið. Þetta er ekki venjulegt eða hefðbundið dagskrármál hér á Alþingi. Þetta er mál sem snertir stöðu Íslands til langrar framtíðar, stjórnskipan, efnahagslega hagsmuni, auðlindir, byggðir, fæðuöryggi, orkumál, sjávarútveg og rétt þjóðarinnar til að móta eigin framtíð.

Þess vegna er rétt að byrja á einfaldri en mikilvægri staðreynd. Við treystum öll þjóðinni en þjóðin á rétt á að sjá og skilja alla myndina. Það er ekki andstaða við lýðræði að gera kröfu um vandaðan undirbúning áður en þjóðin er kölluð til til að greiða atkvæði. Það er einmitt virðing fyrir lýðræði. Það er ekki andstaða við Evrópu að segja að Ísland verði að vita hvert það er að fara áður en lagt er af stað. Það er einfaldlega ábyrg stjórnsýsla, ábyrg leiðsögn. Það er ekki ótti við niðurstöðu þjóðarinnar að krefjast þess að gögn séu opin og gegnsæ, spurningin skýr, kynningin hlutlæg og að rauðu línurnar liggi fyrir.

Virðulegur forseti. Ísland er evrópskt ríki, Ísland er opið samfélag og Ísland er virkur þátttakandi í alþjóðasamstarfi. Við eigum náið og mikilvægt samstarf við Evrópusambandið. EES-samningurinn er einn mikilvægasti viðskiptasamningur sem Ísland hefur gert. Hann tryggir íslensku atvinnulífi aðgang að innri markaði Evrópu. Við erum hluti af EFTA-samstarfinu, við erum hluti af Schengen-samstarfinu og við eigum djúp og traust tengsl við Norðurlöndin. Öryggi Íslands byggist á NATO-aðild okkar og varnarsamstarfinu við Bandaríkin. Því er rangt að stilla þessu upp eins og valið standi á milli Evrópu og einangrunar. Því fer fjarri. Spurningin er vitanlega ekki sú hvort Ísland eigi í nánu samstarfi við Evrópuþjóðirnar. Það gerum við nú þegar og eigum að gera áfram. Spurningin er hvort Ísland eigi að ganga inn í ferli sem getur leitt til þess að ákvörðunarvald á mikilvægum sviðum færist frá Íslandi til stofnana Evrópusambandsins. Það er allt önnur spurning og þessa spurningu þurfum við að ræða af fullri alvöru.

Eitt af kjarnaatriðum þessa máls, þ.e. hugsanlegrar aðildar að ESB, er auðlindaforræði. Ísland er fámennt ríki en ríkt af auðlindum. Við byggjum afkomu okkar að miklu leyti á náttúruauðlindum. Sjávarútvegur, endurnýjanleg orka, landbúnaður, matvælaframleiðsla, ferðaþjónusta, landið sjálft og hafið í kringum okkur eru ekki hliðarverkefni eða einhvers konar smámál í íslenskum stjórnmálum. Þetta eru undirstöður íslensks samfélags. Fyrir stór iðnríki Evrópu getur sjávarútvegur verið einn atvinnuvegur af mörgum. Fyrir Ísland er hann miklu meira. Hann snýst um byggðir, snýst um gjaldeyristekjur, snýst um fæðuöryggi og snýst um sjálfstæða ákvörðunartöku á grundvelli vísinda og reynslu. Hann snýst um það að þjóð sem býr við auðlindina beri sjálf ábyrgð á nýtingu hennar.

Sama á við um orkuna. Endurnýjanleg orka Íslands er ein helsta samkeppnisforsenda þjóðarinnar. Hún er grundvöllur orkuskipta, atvinnuuppbyggingar og framtíðarverðmætasköpunar. Ákvarðanir um virkjanir, flutningskerfi, orkuöryggi, orkuverð og forgangsröðun í orkumálum verða að taka mið af íslenskum aðstæðum og íslenskum langtímahagsmunum.

Hið sama á við um landið okkar í heild. Ferðaþjónustan byggir ekki aðeins á hótelum, veitingastöðum og afþreyingu. Hún byggir á náttúru Íslands, víðernum, landslagi, menningu og sérstöðu. Þess vegna er ekki nóg að segja í ræðum eða viðtölum að Ísland muni halda forræði og yfirráðum yfir auðlindum sínum. Hvaða skýru samningsmarkmið fylgja þeirri yfirlýsingu? Hvaða undanþágur á að sækja? Hvaða varanlegu tryggingar eiga að liggja fyrir? Hvar eru rauðu línurnar og hefur Evrópusambandið gefið nokkra ástæðu til að ætla að slíkar kröfur verði uppfylltar? Þetta eru einfaldlega lykilspurningar. Ef ríkisstjórnin segir að Ísland muni eða verði að halda fullu forræði yfir sjávarútvegi, orku, landi og öðrum auðlindum þá þarf að vera meira en pólitísk yfirlýsing sögð í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Umfram allt þarf að liggja fyrir hvað hugtakið forræði þýðir, rétt eins og hvað hugtakið stjórnun auðlinda þýðir. Annars er þjóðin beðin um að greiða atkvæði um væntingar, ekki staðreyndir. Við skiljum vel að einhver takmörk kunni að vera á því hversu nákvæmlega er hægt að skilgreina hugtakið forræði en við verðum að gera ríka kröfu til þess í þessu ljósi.

Virðulegur forseti. Við þurfum líka að spyrja annarrar grundvallarspurningar: Hvaða vanda á þessi vegferð að leysa? Hvað erum við að sækja í? Ísland er ekki í sömu stöðu og margar þjóðir sem sóttu um aðild að Evrópusambandinu eftir lok kalda stríðsins. Margar þeirra voru að brjótast undan sögulegri kúgun, treysta lýðræðislegar stofnanir, tryggja sér markaðsaðgang og festa sig í sessi í vestrænu samstarfi. Sú staða er ekki á Íslandi. Ísland er rótgróið lýðræðisríki, Ísland er réttarríki og Ísland er eitt ríkasta samfélag heims. Ísland hefur aðgang að innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn. Ísland er stofnaðili að NATO og hefur varnarsamning við Bandaríkin. Ísland á sterk tengsl við Norðurlöndin, Bretland, Norður-Ameríku og Evrópu.

Við eigum ekki að tala okkur niður, virðulegur forseti. Auðvitað stöndum við frammi fyrir áskorunum. Það gera allar þjóðir, alþjóðakerfið er breytt, öryggismálin eru flóknari. Norðurslóðir skipta meira máli. Samkeppni um auðlindir, orku, tækni og áhrif er að aukast. Er svarið við þessum breytta heimi að færa meira ákvörðunarvald frá Íslandi eða er svarið að styrkja stöðu Íslands á eigin forsendum, nýta betur EES-samninginn og -samstarfið, efla tengslin við Norðurlönd, Færeyjar, Grænland, Bretland og Bandaríkin og byggja upp markvissari stefnu fyrir Ísland á Norður-Atlantshafi? Að mínu mati er síðari leiðin sterkari.

Virðulegur forseti. Stundum er látið eins og kjarni máls sé gjaldmiðillinn, efnahagslífið og verðbólgan, að með aðild að Evrópusambandinu geti Ísland síðan tekið upp evru og þá muni vextir og verðbólga lækka. Við eigum að ræða gjaldmiðlamál af alvöru. Það er sjálfsagt. Heimili og fyrirtæki finna fyrir háum vöxtum. Verðbólga hefur grafið undan kaupmætti, húsnæðismarkaðurinn hefur verið erfiður og fólk vill stöðugleika og fyrirsjáanleika en við megum ekki rugla saman ólíkum hlutum. Ef málið snýst í reynd um evru þá eigum við að ræða evruna heiðarlega sem gjaldmiðil sem hefur kosti og galla. Við eigum að ræða hvað felst í því að missa sjálfstæða peningastefnu. Við eigum að ræða um það hvort lítið hagkerfi sem verður reglulega fyrir sérstökum áföllum geti misst það sjálfstæði að hafa eigin stýrivexti, sjálfstæðan seðlabanka og gengissveigjanleika en við eigum ekki að fella þá umræðu inn í almenna atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður. Við eigum ekki að láta eins og aðild að Evrópusambandinu leysi sjálfkrafa efnahagslegt verkefni sem við þurfum sjálf að takast á við. Við lækkum ekki vexti með því að færa ábyrgðina annað. Við lækkum vexti með trúverðugri hagstjórn, ábyrgum ríkisfjármálum, auknu framboði húsnæðis, meiri framleiðni, betri forgangsröðun og stöðugleika hér heima. Þetta eru verkefni dagsins. Þau hverfa ekki við að ræða aðildarviðræðurnar.

Það er einmitt þess vegna sem tímasetning þessa máls vekur spurningar. Við stöndum frammi fyrir stórum verkefnum í efnahagsmálum. Fjármálaáætlun 2027 er risamál og hana á að ræða í næstu viku. Þar birtist forgangsröðun ríkisins, í það minnsta fáum við einhverja sýn á hvað ríkisstjórnin stefnir á að framkvæma næstu misseri. Samt hefur umræðan undanfarnar vikur að miklu leyti snúist um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu í lok sumars. Þá vaknar sú spurning hvort þjóðinni sé gefinn nægur tími til að ræða málið af þeirri yfirvegun sem það krefst. Nefndarvinnan hefur verið undir mikilli tímapressu. Gögn hafa borist seint. Beiðnum um upplýsingar hefur ekki verið sinnt með þeim hætti sem slíkt mál krefst. Gestir hafa fengið takmarkaðan tíma til að gera grein fyrir sjónarmiðum sínum. Alþingi hefur ekki fengið það svigrúm sem það þarf til þess að sinna rannsóknar- og eftirlitshlutverki sínu með fullnægjandi hætti. Þetta er ekki boðlegt, virðulegur forseti, í máli af þessari stærðargráðu. Þjóðaratkvæðagreiðsla getur verið öflugt lýðræðistæki en hún verður aðeins raunverulegt lýðræði ef þjóðin fær aðgang að gögnum, tíma til að meta þau, hlutlæga kynningu og skýra mynd af því hvað er undir. Það þarf að liggja skýrt fyrir hver fer með kynningu málsins og hvernig. Það þarf að tryggja að kynningin verði óháð og fagleg.

Virðulegur forseti. Ísland á að vera opið, alþjóðlegt og virkt. Við eigum að rækta samstarf við Evrópu. Við eigum að verja EES-samninginn og nýta hann betur. Við eigum að efla Norðurlandasamstarf og við eigum að byggja upp markvissari stefnu gagnvart Norður-Atlantshafi. Við eigum að horfa til Færeyja og Grænlands sem nágranna sem deila með okkur hafsvæði, auðlindum og hagsmunum. Við eigum að styrkja tengslin við Bretland og Bandaríkin. Sérstaða Íslands er mikill styrkur. Við eigum ekki að tala eins og Ísland sé of lítið til að standa á eigin fótum. Sagan sýnir okkur annað. Á örfáum kynslóðum höfum við byggt upp eitt farsælasta samfélag heims og það gerðist ekki vegna þess að við afsöluðum okkur ábyrgðinni. Það gerðist vegna þess að við tókum ábyrgð. Við tókum ábyrgð á fiskveiðum, við tókum ábyrgð á orkunni, við tókum ábyrgð á eigin velferðarkerfi og við tókum ábyrgð á menntun, atvinnuuppbyggingu og samfélagslegri þróun. En auðvitað höfum við gert mistök og auðvitað þurfum við að læra og auðvitað þurfum við að vinna með öðrum þjóðum en við eigum ekki að draga þá ályktun að framtíð Íslands verði best tryggð með því að færa grundvallarákvarðanir um íslenska hagsmuni og framtíð Íslands til meginlands Evrópu.

Þjóðin á lokaorðið. Um það er ekki verið að deila. Hún stjórnar ferðinni. En áður en þjóðin talar þarf Alþingi að vinna sína vinnu. Ríkisstjórnin þarf að leggja fram gögn. Skilyrðin þurfa að liggja fyrir. Rauðu línurnar þurfa að vera skýrar. Kynningin þarf að vera hlutlæg, tíminn þarf að vera nægur og umræðan þarf að vera heiðarleg. Það dugar ekki að halda því fram að við fáum góðan samning, að samningsstaðan sé sterk eða að auðlindir þjóðarinnar verði tryggðar á forræði hennar. Það þarf að ríkja traust um að þessi sjónarmið haldi, því þegar kemur að auðlindum Íslands, sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar og framtíðarstöðu landsins í heiminum þá duga ekki almenn fyrirheit.

Virðulegur forseti. Lokaorð mín eru þessi: Við eigum að verja og vernda samstarf okkar við Evrópuþjóðir en ef taka á nýja stefnu í Evrópumálum verður sú umræða að fara fram á upplýstum og vönduðum forsendum. Við eigum að segja nei við óvissu, nei við óskýrum rauðum línum, nei við hraðferð í jafn stóru máli og nei við því að þjóðin sé beðin um að taka afstöðu án þess að öll gögn liggi fyrir. Framtíð Íslands byggist á kjarki til að standa með íslenskum hagsmunum og víðsýni til að vinna með öðrum þjóðum. Þess vegna þurfa stjórnvöld að staldra við og meta hvort þau geti tryggt þjóðinni fullnægjandi upplýsingar, hlutlæga kynningu, opin gögn og skýrari svör um rauðu línur Íslands í mögulegum viðræðum. Ef ekki, ber þeim að íhuga alvarlega hvort rétt sé að fresta atkvæðagreiðslu. Það væri virðing fyrir þjóðinni, Alþingi og umfangi málsins. Þjóðin á lokaorðið og við treystum þjóðinni.