þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég byrja á því að þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir góða ræðu. Það er margt sem þar kom fram sem ég get tekið undir og ég vil meina að sé svo sannarlega satt og rétt. Mig langar til að gera hér aðeins að umræðuefni og spegla hv. þingmann í þeirri umræðu að nefna samningsstöðu Íslands. Ef við horfum bara til þess hvernig staðið var að þessari ákvörðun, að fara þessa vegferð, þá vil ég bara minna á það að í kosningabaráttu fyrir þetta kjörtímabil var þetta mál í raun kirfilega falið. Flokkur fólksins boðaði reyndar sína stefnu að vera alfarið á móti málinu. Viðreisn talaði ekki fyrir þessu nema sérstaklega væri innt eftir því og mér fannst Samfylkingin eða Kristrún Frostadóttir, hæstv. forsætisráðherra, taka skynsamlega afstöðu í því máli, að þetta væri ekki á dagskrá. Nú er það þannig að menn hafa gjarnan borið því við að þegar við sóttum um síðast, þegar við hófum þessar viðræður, hafi samningsstaða Íslands verið mjög döpur og við hefðum verið að koma úr hruni o.s.frv. Núna hins vegar tala menn um að við séum í sérstaklega góðri samningsstöðu. Hér hafa þingmenn, fleiri en einn, nefnt það að við eigum að geta mætt til Brussel og verið með kassann úti og lýsa því þá í rauninni að við ætlum að selja okkur dýrt, eins og það hefur áður komið fram hér. En ég velti fyrir mér: Ef samningsstaða okkar er svona góð eins og talið er, af hverju er þá ekki bara Evrópusambandið hreinlega að leita til okkar um að við sækjum um aðild að Evrópusambandinu, til að styrkja Evrópusambandið? Hefur hv. þingmaður skoðun á þessu?