157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:47]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Spurningin er í raun og veru þessi: Af hverju er Samfylkingin ekki að standa við kosningaloforð sitt? Því það var nákvæmlega þetta, eins og hv. þingmaður fór yfir í síðara andsvari sínu, sem Samfylkingin lofaði fyrir síðustu kosningar og var kosin út á; það væri brýnna verkefni og meira aðkallandi að ná tökum á efnahagsmálum þjóðarinnar heldur en að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Nú er öllum það ljóst að þegar stýrivaxtahækkunin reið yfir okkur í gær, 7,75% stýrivextir, verðbólgan er 5,5%, hagvöxtur á niðurleið, atvinnuleysi á uppleið og verðbólguvæntingar að hækka, að það verkefni hefur mönnum ekki tekist. En við getum ekkert hlaupið frá því verkefni. (Forseti hringir.) Alveg sama þó að við hefjum aðildarviðræður að Evrópusambandinu þá er það verkefni sem við þurfum alltaf að takast á við. Því er forgangsröðunin röng, virðulegur forseti. (Forseti hringir.) Að sjálfsögðu áttum við að byrja að taka til hér heima áður en við fórum að horfa á önnur verkefni.