157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:49]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir ágætisræðu. Þar sem ég hélt ræðu fyrir ekki svo löngu síðan og nefndi að hér væri ekki nokkurn stjórnarþingmann að sjá þá langar mig að bæta við þær upplýsingar að það situr einn stjórnarþingmaður hér í hliðarsal. Hann er í skjóli, menn sjá hann ekki alveg héðan úr salnum, en hann er mættur. Það er jákvætt fyrir umræðuna. En það sem mig langar að byrja á að ræða við hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, þar sem hann situr í fjárlaganefnd og er talnaglöggur maður, er það sem hefur heyrst hér, og ég veit að almenningur hlustar oft á, um vexti, verðbólgu og gjaldmiðil. Það liggur ljóst fyrir að sum ríki hafa búið við stöðnun, lítinn hagvöxt og mikla öldrun samfélagsins. Við getum nefnt Japan sem dæmi. Þar hafa vextir verið neikvæðir árum saman og þeir eru rétt að skríða yfir núllið núna. Eru lágir vextir merki um heilbrigt hagkerfi? Lágir vextir í Evrópu eru nefnilega af sömu ástæðum og lágir vextir í Japan. Þar hefur ríkt stöðnun og hagvöxtur verið lítill sem enginn og framleiðni hefur minnkað. Þetta eru ekki stærðir sem meiri hlutinn talar um en með einhverjum óskilgreindum hætti, ef Ísland gengur í Evrópusambandið, eiga vextir að lækka hér, bara einn, tveir og þrír. Væri ekki nær að ganga í ríkjasamband við Japan til að lækka vexti og hafa þá jafnvel neikvæða þannig að við fáum bara borgað með innstæðum, eða að þær eyðist upp? En hvað finnst hv. þingmanni um þessa vaxta- og evruumræðu hér? Verður bara betri tíð með blóm í haga ef við göngum í Evrópusambandið hvað þetta varðar?