157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:54]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir gott svar við andsvari mínu. Hann nefnir hér Maastricht-skilyrðin. Til að geta tekið upp evru þurfum við að uppfylla Maastricht-skilyrðin, það þarf bara að vera alveg á hreinu fyrir íslenska þjóð. Þá má verðbólga á síðasta ári ekki hafa verið meiri en 1,5% yfir meðaltali þeirra þriggja ESB-ríkja sem hafa lægsta verðbólgu. Hv. þingmaður fór rétt með þetta hér áðan í pontu. Hv. þingmaður nefnir líka að okkur hefur tekist að vera þar, en hv. þingmaður er það hógvær að hann nefnir ekki hvenær það var. Það var þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur voru hér við völd á árunum 2013–2016. Þetta er alveg hægt og þegar þessu er náð, til hvers þurfum við þá að ganga í Evrópusambandið, ef þetta er það sem freistar manna? (Forseti hringir.) Þetta er hægt. Við getum gert þetta. Covid, jarðeldar og annað slíkt kom í veg fyrir að síðasta ríkisstjórn gæti gert þetta. En þessi ríkisstjórn er gjörsamlega vanhæf því að hún býr til sína eigin verðbólgu algerlega sjálf.