þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Það er rétt, það var á tímabili í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem þessi stöðugleiki náðist, svo sannarlega. Svo kom náttúrlega Covid sem fór með þetta og ekki bara á Íslandi heldur alls staðar í Evrópu. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, ég þarf að reyna að brjótast út úr minni hógværð. Hv. þingmaður talar um að þetta sé hægt og það er alveg rétt, þetta er hægt. Við höfum gert þetta og við gerðum þetta. Við vissum það þegar við fórum í aðgerðir vegna Covid að það myndi hækka verðbólgu. Við vissum það þegar við fórum í aðgerðir út af Reykjaneseldum að það myndi hækka verðbólgu. Því miður var það bara þannig að sú ríkisstjórn sem stóð í þeim verkefnum var kosin burt og við tók önnur ríkisstjórn. Þeirri ríkisstjórn hefur ekki tekist verkefnið sem var að ná tökum á efnahagsmálunum, bara alls ekki. Það þarf ekki annað en að fara inn á Seðlabankann og skoða gröfin. Verðbólga og vextir voru á hraðri niðurleið hér fyrir kosningar 2024. Hvernig er ástandið í dag? Það virðist vera eina leiðin og eina lausnin hjá þessari ríkisstjórn sem er búin að missa tökin á þessu að segja: Heyrðu, við bara hendum inn handklæðinu og látum nú Brussel græja þetta fyrir okkur. Nei takk.