157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:57]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Umræðan hefur um margt til þessa verið ágæt og upplýsandi en þó kannski ekki nægjanlega upplýsandi. Eins og kom fram í áherslum mínum í andsvörum við hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson hér rétt áðan, þá glímum við enn við hugtakarugling sem er sennilega það sem verður einna erfiðasta viðfangsefnið í aðdraganda þessarar atkvæðagreiðslu, þ.e. að allir sem kjósi að greiða atkvæði, sem verða vonandi sem flestir, þekki hugtökin sem um er að ræða. Ég mun aðeins fara betur yfir þau á eftir, herra forseti.

Fyrst langar mig að nefna aðeins, svo ég gleymi því ekki, að eftir því sem ég best veit hefur ekki enn þá verið orðið við beiðni fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, um að fá afrit af gögnunum sem hann þó sendi í sinni embættistíð. Það hefur ekki verið orðið við þeirri beiðni. Annað sem ég tel að hafi kannski pínulítið gleymst að nefna í þessu, þó að það sé ekki hluti af þessari þingsályktunartillögu en er rétt að hafa í huga þegar þessi umræða fer fram, er að þegar skoðuð er almenn velsæld í löndum í Evrópu þá skora þar einna hæst lönd eins og Sviss, Noregur og Ísland og það vill nú svo til að þessi lönd eiga það sameiginlegt að ekkert þeirra er aðildarríki Evrópusambandsins. Það býr til hugrenningatengsl í þessari umræðu hér, með öðrum orðum: Það er ekki samasemmerki milli þess að það sé almenn velmegun og þess að Evrópuríki séu innan Evrópusambandsins. Í raun og veru þvert á móti.

Það rekur mann til þess að velta fyrir sér líka þeim ótta sem margir hafa tjáð, held ég, sama hvar þeir standa við borðið og þó hefur því nú einkum og sér í lagi verið haldið á lofti af hálfu meiri hlutans annars vegar og svo þeirra sem reka einhverjar síður og skrifa greinar og annað slíkt og tilheyra þessum svokallaða já-hópi; það er þessi ótti við erlend afskipti, að hér verði komið inn með einhver óeðlileg afskipti. En það ber ekkert á því nema með einni undantekningu, herra forseti. Það er ein undantekning og hún hefur legið fyrir síðan 2009 sem er sú að Evrópusambandið hefur verið algerlega skýrt með að það muni beita sér í umræðunni til að tryggja réttar upplýsingar. Ég veit ekki hvort það er æskilegt að annar samningsaðili sjái um að tryggja réttar upplýsingar. Ég er í raun og veru algerlega sannfærður um að í öllum slíkum viðræðum sé mjög óeðlilegt að ríkjasamband ætli að taka að sér að tryggja réttar upplýsingar til handa þegnum ríkis sem eru að velta fyrir sér inngöngu. Þetta hlýtur í besta falli að vera óeðlilegt.

Síðan langar mig að nefna að Miðflokkurinn setti Evrópumálin algerlega á dagskrá í kosningabaráttunni og reyndi að kalla fram og tókst að kalla mjög afgerandi fram afstöðu annarra flokka. Það var mikil málafylgja af hálfu Miðflokksins í aðdraganda síðustu kosninga að kjósendur hefðu skýrt val, hvort þeir hygðust styðja flokka sem hefðu það í forgangi að sækja um aðild að Evrópusambandinu eða styðja flokka sem gerðu það ekki. Niðurstaðan var alveg skýr og skýrleikinn var kannski best sýnilegur í könnunum um það leyti þegar núverandi hæstv. forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, hamraði á því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar í viðtölum að þetta væri ekki á dagskrá hjá Samfylkingunni og gaf í skyn að það væri a.m.k. ekki í fyrirsjáanlegri framtíð. Ég hef farið svo oft núna í beinar tilvitnanir, herra forseti, að ég er að hugsa um að hlífa áheyrendum við því en það var sterklega gefið í skyn að þetta yrði ekki gert og væri ekki á dagskrá nema þá að undangengnum árangri í tilteknum verkefnum. Þau verkefni voru algerlega skýr af hálfu hæstv. forsætisráðherra. Þau voru að ná hér niður verðbólgu og vöxtum, númer eitt, tvö og þrjú. Fyrr væru þessi mál ekki á dagskrá. Ég hygg að flestir muni eftir því hvernig sú áhersla Samfylkingarinnar var á þeim tíma markaðssett, þ.e. með því að nota myndlíkingarmálið um stóru sleggjuna og gera myndefni til að ýta undir þau hughrif og það virkaði. Það hversu skýr hæstv. forsætisráðherra var í aðdraganda kosninga virkaði. Fylgið jókst og niðurstaða kosninganna var Samfylkingunni tiltölulega hagfelld.

Nokkuð skýr var einnig formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, nú hæstv. utanríkismálaráðherra. Það þyrfti að ná tökum á ástandinu hér heima fyrst. Og aftur, herra forseti, ég hef nokkrum sinnum vitnað beint í ummæli hæstv. utanríkisráðherra og hyggst hlífa áheyrendum við því hér og nú.

Allt var þetta tiltölulega skýrt fyrir kosningar fyrir utan að þriðja hjólið í þessari ríkisstjórn var mjög afgerandi í afstöðu sinni, var á móti aðild að Evrópusambandinu og svaraði kosningaprófi í aðdraganda kosninga á þá leið að þau styddu ekki heldur þessa vegferð með slíkri atkvæðagreiðslu sem nú er fyrirhuguð. Hér er því ekki bara verið að leggja til að sigla, að mínu mati, undir fölsku flaggi til umræðna heldur er þetta þvert á það sem kjósendur máttu eiga von á þegar þeir gengu inn í kjörklefann fyrir síðustu kosningar. Þar talaði þjóðin.

Nú hefur verið hamrað á því hvort við sem höfum efasemdir treystum ekki þjóðinni. Jú, við treystum þjóðinni og gáfum okkar afstöðu fyrir kosningar til þess að hinn almenni kjósandi gæti tekið skýra afstöðu í einu stærsta máli — þetta er líklega annað af tveimur stærstu málum sem hafa verið til umfjöllunar í sölum Alþingis frá því að Ísland varð fullvalda ríki. Hitt málið er fyrri hluti sama máls, þ.e. umsóknin frá 2009. Auðvitað höfum við glímt við fjölmörg risastór mál en frá fullveldisstofnuninni höfum við ekki tekist á við neitt viðlíka þessu enda ekkert viðlíka þessu til. Hér er um að ræða gífurlegt framsal á fullveldinu og meira að segja stjórnarmeirihlutinn, ákveðnir þingmenn stjórnarmeirihlutans, er farinn að gangast við þessu að hluta. Þeir nota að sjálfsögðu minna gildishlaðin orð því það hentar ekki þeirra málstað. Það hefur komið fram í ummælum frá þingmönnum meiri hlutans að til að mynda Svíþjóð deili fullveldinu sem er nákvæmlega það sem aðild að Evrópusambandinu snýst um, að gefa eftir hluta af fullveldi hverrar þjóðar. Ísland gæti ekki einu sinni gert fríverslunarsamning upp á sitt eindæmi. Slíkt yrði Evrópusambandið að gera fyrir hönd Íslands.

Ég vona að okkur takist í þessari umræðu, af því að mér vannst ekki tími til þess núna, að fara ítarlega í gegnum hugtakanotkunina það sem eftir er af þessari umræðu og sem mest í allt sumar því það er grundvallaratriði (Forseti hringir.) fyrir alla sem ætla að taka afstöðu til þessarar atkvæðagreiðslu að þekkja hugtökin til að láta ekki villa sér sýn.