157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:08]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir góða ræðu, innblásna og góða ræðu. Honum er tíðrætt um hugtök og það sem hefur komið mér á óvart í stjórnmálum síðan ég byrjaði fyrir einu og hálfu ári síðan er hversu ákveðið og markvisst stjórnmálamenn, og þá sérstaklega meiri hluti þingmanna sem í þessum sal eru, nota hugtök og breyta hugtökum, þeir eru með ákveðna frasa, svona frasapólitík þar sem innihaldið er eiginlega ekki neitt. Í kringum þessar umræður hér var verið að tala um að kíkja í einhvern pakka, skapa væntingar um að eitthvað óvænt gæti birst úr einhverjum pakka ef við færum í aðlögunarviðræður við ESB. Auðvitað má segja að fólk eigi að sjá í gegnum þetta en ég held að almenningur treysti oft þeim sem hann er búinn að kjósa, að þarna gæti komið eitthvað óvænt upp úr pakkanum. En það sem við vitum er að ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur, ekkert, 0%. Mig langar að spyrja hv. þm. Þorgrím Sigmundsson hvort hann haldi að sérstaða Íslands muni skapa einhverjar aðstæður þannig að við getum fengið varanlegar undanþágur. Það er munur á varanlegum undanþágum og tímabundnum og langvarandi. Heldur hv. þingmaður að við Íslendingar getum fengið varanlegar undanþágur í gegnum einhvers konar aðlögun?