157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:10]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðisvangaveltur og spurningar. Mér tókst ekki að komast í nákvæmlega þetta í ræðunni sem hafði þó verið meiningin, en ég var greinilega langorðari í öðru en ég hafði ætlað mér. Þetta er kjarni málsins. Við munum aldrei ná, hvorki í þessum sal né úti í samfélaginu, að ræða þetta af einhverri þekkingu til að geta spáð fyrir um hvað er í farvatninu nema maður skilji hugtökin sem verið er að slengja fram. Það er ástæða fyrir því að þeir sem ólmir vilja komast þarna inn eru að passa sig á að nota ekki ákveðið hugtak. Það er aldrei notað hugtakið varanleg eða ófrávíkjanleg krafa um undanþágu frá stofnsáttmála Evrópusambandsins. Allir aðilar sem eru fylgjandi inngöngu, allir þeir sem hér eru fulltrúar með einhverjum hætti meiri hlutans, almennir þingmenn eða eftir föngum ráðherrar, hafa passað sig á því að nota ekki þetta orðalag. Fyrir því er ástæða því þetta hefur ekki gerst. Ég vitna aftur til ummæla Mörtu Kos, sem í dag eru eins árs og eins dags gömul, þar sem allur vafi var tekinn af um að það væri einfaldlega gengið út frá því að innleiða þetta í heild sinni eða eins og það leggur sig, var það þýtt af Hirti J. Guðmundssyni sem heldur úti stjórnmálum.is.

Ég er með hérna einn punkt í viðbót sem ég hefði viljað koma að en ég næ kannski að lauma honum inn í seinna svarinu.