þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisspurningar. Það sem er svo skemmtilegt, ég ætla að leyfa mér að nota orðið skemmtilegt, við þessa spurningu frá hv. þingmanni er að þegar við náum þeim stað að standast Maastricht-sáttmálann, sem ég hef fulla trú á að við gerum, þá segir sagan okkur að þegar okkur gengur svona vel er fylgnin í mælingum í þjóðfélaginu við inngöngu í Evrópusambandið engin — eða sem nemur fylgi Viðreisnar u.þ.b., kannski rétt rúmlega. Það verður nefnilega að keyra þetta mál á fullri ferð af hálfu þeirra sem vilja ganga inn á meðan ástandið er ekki nógu gott. Ég ætla ekki að fara lengra með þessar bollaleggingar. Ég held að hv. þingmaður skilji hvert ég er að fara.
En af því að ég komst ekki alveg í gegnum það áðan þá langar mig að bæta við fyrra svar. Það skaut allt í einu upp núna umræðu um það að Bretar hefðu séð eftir því að fara út úr Evrópusambandinu. Einhverjar stakar mælingar geta auðvitað sýnt eitt og annað, einmitt þegar ekki gengur nógu vel þrátt fyrir að það sé öllum ljóst að ástandið í Bretlandi, ástæðan fyrir því að þar gengur ekki nógu vel um þessar mundir, sé af allt öðrum toga, sem er líka stórmál og hefur mikið verið rætt í þessum þingsal hvað varðar Ísland. Georg Riekeles, sem starfaði fyrir ESB í tengslum við samninginn um útgöngu Breta á sínum tíma, hefur svarað þessu og hann sagði að Bretar væru að sjálfsögðu, eins og aðrar þjóðir, velkomnir aftur í Evrópusambandið en, með leyfi forseta, þeir þyrftu þá að sætta sig við aðild á sömu forsendum og allir aðrir. Allir aðrir. Þessu er svarað, herra forseti, (Forseti hringir.) aftur og aftur af hverjum aðilanum á fætur öðrum sem hefur reynslu og þekkingu af því að starfa innan þessa kerfis þessa draumaríkis.