157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:17]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Hér höfum við til umfjöllunar mikið grundvallarmál fyrir framtíð íslensku þjóðarinnar þótt við séum auðvitað ekki að greiða hérna atkvæði með eða á móti aðild að Evrópusambandinu. Við erum að greiða atkvæði með eða á móti þeirri tillögu að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um, eins og það er orðað, framhald viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Þegar almenningur og þingheimur leggur niður fyrir sér hvernig eigi að nálgast þessa tillögu þá er mjög mikilvægt að allir séu rétt upplýstir um hvað hún felur í sér. Ég myndi segja, út frá því hvernig maður hefur fylgst með umræðu um þetta mál, alveg frá því að þessi ríkisstjórn var mynduð, að þá hafi forsendur fyrir þessari tillögu verið tiltölulega breytilegar frá einum tíma til annars. Ég held að til að reyna að átta okkur á því í hvaða stöðu við erum komin núna gagnvart þessu máli sé ekkert vitlaust að rifja aðeins upp hvernig umræðan var hér fyrir alþingiskosningar, til að glöggva sig á raunverulegri afstöðu ríkisstjórnarflokkanna til þeirrar hugmyndar að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu.

Hvað snertir Flokk fólksins þá kom það tiltölulega skýrt fram af hálfu talsmanna flokksins að þeir styddu ekki aðild að Evrópusambandinu og ef mig misminnir ekki var svar þeirra í kosningaprófum á þá lund að þeir styddu ekki heldur aðildarviðræður eða atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður. Ég held að ég sé með það punktað niður hjá mér þannig, ég er ekki með það hérna hjá mér en ég held að maður geti lýst því þannig að Flokkur fólksins hafi lagst eindregið gegn aðild og gegn því að á kjörtímabilinu færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla um málið. Það er afstaða Flokks fólksins.

Síðan er það Samfylkingin. Það er auðvitað sérstakt rannsóknarefni hvernig hæstv. forsætisráðherra, formaður Samfylkingarinnar, fór í kringum þetta efni í kosningabaráttunni en engu að síður var málflutningur hennar tiltölulega skýr á þá lund að þetta væri ekki forgangsmál, alla vega ekki á meðan ekki væri búið að greiða úr öðrum meira áríðandi viðfangsefnum íslenskra stjórnvalda. Ekki hefur verið greitt úr þeim áríðandi viðfangsefnum heldur hafa þau versnað, þannig að því marki hafa menn breytt afstöðu sinni frá því sem fram kom af þeirra hálfu í kosningabaráttunni.

Svo er það Viðreisn, sem er kannski sá flokkur af ríkisstjórnarflokkunum sem gekk heiðarlegast fram í kosningabaráttunni um þetta efni þótt ekki hafi vilji flokksins endilega staðið til að setja þetta mjög á dagskrá í umræðunni. Þrátt fyrir það gátu menn nú alveg gengið út frá því hvað menn hygðust fyrir á þeim bænum og er það gott og blessað og sjálfsögð afstaða og alveg hægt að virða það við menn að hafa hana.

Þetta er afstaða ríkisstjórnarflokkanna. Við erum með flokk í ríkisstjórninni, þ.e. Viðreisn, sem hefur afgerandi afstöðu til Evrópumála en hinir tveir flokkarnir eru ýmist á móti eða tvístígandi með ýmsa þætti málsins. Ég nefni þetta ekki til að velta mönnum upp úr fyrri afstöðu heldur tel ég að þessar upplýsingar skipti máli fyrir þjóðina þegar hún tekur afstöðu til þess hvort hún treysti þessari ríkisstjórn með þeim hætti að hún vilji fela henni að leiða viðræður við Evrópusambandið um aðild Íslendinga að sambandinu. Það felur þessi þingsályktunartillaga í sér; að þessir flokkar, að þessi ríkisstjórn verði sú ríkisstjórn sem fari með Ísland að samningaborðinu. Það er engin önnur ríkisstjórn að fara að gera það með sama móti. Uppleggið er þetta. Þess vegna þarf að hugsa: Hvernig er þessi ríkisstjórn í stakk búin til þess að sinna því verkefni? Og ég er ekki frá því, virðulegur forseti, að upp sé kominn viss ágreiningur eða a.m.k. alvarlegt ósamræmi í málflutningi í röðum fulltrúa ríkisstjórnarinnar, alla vega ef maður ber saman málflutning hæstv. formanns Samfylkingarinnar, hæstv. forsætisráðherra, og svo hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Jóhanns Páls Jóhannssonar hérna fyrr í dag og ber það saman við efni þingsályktunartillögunnar sjálfrar. Ég ítreka enn á ný að þessi afstaða og þessar upplýsingar eru ekki aukaatriði um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu heldur skipta þær verulegu máli út frá því hvað fólk ætlar að kjósa. Það sést t.d. núna að fulltrúar Samfylkingarinnar taka það skýrt fram og Kristrún Frostadóttir hafði nú gefið til kynna eitthvað á þennan veg og sagði tiltölulega skýrt í lok apríl á opnum nefndarfundi hér í þinginu og lýsti þessu svoleiðis, með leyfi forseta:

„Ég mun segja já í ágúst, en ég vil líka fá góðan samning. Og ég mun aldrei leggja til samning inn í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu, sem ég hef ekki trú á að treysti fullveldi okkar, sjálfstæði og efnahagslega hagsmuni til lengri tíma.“

Þarna er hæstv. forsætisráðherra búinn að lýsa því yfir að þjóðaratkvæðagreiðsluferlið og aðildarferlið sem ríkisstjórnin sér fyrir sér sé í raun og veru ekki það sem oftar er lagt upp með í umræðunni af hálfu talsmanna ríkisstjórnarinnar af því að þar er því iðulega lýst þannig að hér verði einfaldlega, ef af þessu verður, samþykkt þingsályktunartillaga. Svo verði farið í þjóðaratkvæðagreiðslu og ef svarið er já í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu þá gangi menn til samninga við Evrópusambandið þar til fyrir liggi samningur og að svo verði þessi samningur lagður fyrir þjóðina. Það er þannig sem flestir skilja þetta. Það er þannig sem almenningur skilur þetta. Það er þannig sem þingheimur hefur að mínu viti skilið málið hingað til, að þessi samningur sem kann að koma út úr þessum aðildarviðræðum verði lagður fyrir þjóðina. Hins vegar kemur annað hljóð í strokkinn þegar menn, fulltrúar Samfylkingarinnar, fara að kveða nokkuð fast að orði um að það séu ákveðin skilyrði fyrir því að þessi samningur verði yfirleitt lagður fyrir þjóðina í seinni atrennu, frekar skýr skilyrði sem eru að herðast með tímanum ef maður hlustar á málflutninginn. Kristrún Frostadóttir, hæstv. forsætisráðherra, segir, með leyfi forseta: „Og ég mun aldrei leggja til samning inn í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu, sem ég hef ekki trú á að treysti fullveldi okkar, sjálfstæði og efnahagslega hagsmuni til lengri tíma.“ Þetta segir hæstv. forsætisráðherra, þessi samningur verði ekki lagður fram í síðari atkvæðagreiðslunni þannig að menn ætla skyndilega að hætta að treysta þjóðinni þegar þangað er komið. Þá eru þeir ekki lengur að treysta þjóðinni ef samningurinn er að þeirra mati ekki góður en þeir eru að treysta þjóðinni í bili og ef þeim líst á samninginn.

Gott og vel. Maður getur skilið þetta eins og maður skilur þetta. Maður hefði kannski haldið að nánast hvaða samningur sem kæmi út úr þessum aðildarviðræðum yrði lagður fyrir þjóðina, að þessi skilyrði sem Kristrún Frostadóttir, hæstv. forsætisráðherra, lýsir með þessum hætti séu kannski til þess fallin að hljóma eins og menn standi fast á sínu en að í raun réttri og í veruleikanum hyggist menn þó alveg leggja þetta fram, það sé afar ólíklegt og það þurfi afskaplega mikið til til þess að ríkisstjórnin raunverulega ákveði, eftir margra ára aðildarviðræðnaferli á Íslandi og þegar samningur við Evrópusambandið liggur fyrir, að leggja hann ekki fram í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég kem aðeins betur að því eftir smástund að það er algerlega skýrt kveðið á um það í þessari þingsályktunartillögu að það verði gert þótt menn séu að setja fyrirvara fram í umræðunni.

Í öllu falli vildi ég skerpa á þessari afstöðu Samfylkingarinnar í málinu vegna þess að hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Jóhann Páll Jóhannsson kemur hér í ræðustól áðan og lýsir því yfir fullum fetum að óhagfelldur samningur verði ekki lagður fyrir þjóðina í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Bein tilvitnun er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Við erum ekki að fara í aðra þjóðaratkvæðagreiðslu með vonlausan samning við Evrópusambandið sem stjórnarflokkarnir standa ekki með.“

Þarna hefur bæst við skilyrði um að stjórnarflokkarnir þurfi að standa með þeim samningi sem kemur út úr aðildarviðræðum. Fyrr í þessari ræðu lýsti ég því að afstaða eins stjórnarflokkanna þriggja er almennt verulega neikvæð gagnvart Evrópusambandinu. Afstaða Samfylkingarinnar hefur verið blönduð þótt hún sé ef til vill almennt jákvæð og svo er það afstaða Viðreisnar sem er almennt jákvæð. Þannig að nú er búið að gefa það út af hálfu ríkisstjórnarinnar, og það hefur ekki verið leiðrétt, að ef stjórnarflokkarnir standa ekki með þeim samningi sem kemur út úr aðildarviðræðum — sem vel að merkja munu mögulega taka ár, munu kosta íslenskt samfélag ómælt erfiði og umstang, pappírsvinnu og krafta hinnar opinberu stjórnsýslu — og nú er búið að gefa það út að mögulega, ef þeim líst ekki á þennan samning, ef hann nýtur ekki stuðnings stjórnarflokkanna, verði hann ekki lagður fyrir þjóðina.

Það breytir að mínu mati þessari umræðu að verulegu leyti. Ef þetta verður ekki leiðrétt, ef menn kveða ekki skýrar að orði um að þeir hyggist leggja fram þennan samning til þjóðaratkvæðagreiðslu, til hvers er þá farið af stað, ef ekki? Þetta ósamræmi er ekki síst athyglisvert í ljósi þess að sá tónn sem sleginn er í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra er einfaldlega allur annar. Ef farið er yfir orðalagið í þingsályktunartillögunni er ekkert vikið að fyrirvörum um það að stjórninni þurfi að lítast nægilega vel á þennan samning til þess að hann verði lagður fram í síðari atkvæðagreiðslu. Öllu heldur les maður hér, með leyfi virðulegs forseta:

„Þegar samkomulag hefur náðst um alla samningskafla viðræðna yrði boðað til ríkjaráðstefnu til að marka lok viðræðna og Evrópuþinginu falið að veita samþykki sitt fyrir niðurstöðunni. Því næst færi fram formleg undirritun aðildarsamnings, þó með fyrirvara um staðfestingu Íslands á grundvelli þjóðaratkvæðagreiðslu og staðfestingu aðildarríkja ESB.

Fyrir Alþingi yrði að svo búnu lögð fram tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um téðan aðildarsamning.“

Hér er alla vega búið að fullyrða að þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu verði lögð fram, að gefnu samþykki Alþingis færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla samkvæmt kosningalögum. Þar með er þetta kannski orðið lykilfrasi hér í þingsályktunartillögunni, að gefnu samþykki Alþingis, að þessi síðari atkvæðagreiðsla fari fram. Þar með hafa stjórnarliðar boðað að þeir séu tilbúnir til að fella þennan samning þegar á þinginu og þar með falla frá þessari göfugu hugsjón ríkisstjórnarinnar um að hér verði að treysta þjóðinni fyrir öllum sköpuðum hlutum. Traustið er með öðrum orðum greinilega ekki meira en sem því nemur að menn eru tilbúnir að segja hér fyrir fram að þeir fari ekki með samninginn sem við fáum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta eru einfaldlega lykilupplýsingar í málinu. Á öðrum stað í þessari þingsályktunartillögu segir, með leyfi forseta:

„Þá liggur fyrir að þjóðin getur ekki tekið afstöðu til aðildar nema að aðildarviðræðum verði haldið áfram og þeim lokið með samningi um aðild Íslands að ESB sem síðan yrði lagður fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar.“

Það er með öðrum orðum fullyrt alveg skýrt í 2. lið greinargerðarinnar að þessi samningur verði lagður fyrir þjóðina, að án þess geti það ekki talist hafa gerst að þjóðin hafi tekið afstöðu til aðildar. Ekki án þess að þessi samningur verði lagður fyrir þjóðina í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu.

Maður gæti nú haft í hyggju í fyrstu ræðu um þetta grundvallarmál að fjalla um ýmsa aðra þætti og anga málsins, svo sem afleiðingar þess að fara inn í Evrópusambandið. En mér finnst ekkert óeðlilegt að einskorða þessa umræðu hér um sinn við raunverulega niðurstöðu og einfaldlega praktískan veruleika Íslendinga ef greidd verða atkvæði með því í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu að fara í þessar aðildarviðræður. Þá verður allt samfélagið, eins og ég lýsti hérna áður, undirlagt. Ég get, ef mér gefst tími til síðar í ræðunni, vikið að því hvað raunverulega er átt við með þessum aðildarviðræðum og ég er viss um að fleiri hv. þingmenn munu sannarlega taka þá þætti föstum tökum og vonandi ég á síðari stigum ef mér gefst tækifæri. En það grundvallarferli á nú að fara fram með fyrirvara um það að ef stórum hluta ríkisstjórnarinnar kann að mislíka samningurinn þá hyggst sá hluti ríkisstjórnarinnar, samkvæmt þessum yfirlýsingum, falla frá þeirri hugsjón að þjóðinni beri að treysta. Ef þeim líst svo illa á samninginn þá gildir það ekki lengur að það eigi að treysta þjóðinni heldur eigi einfaldlega að stinga samningnum ofan í skúffu. Hvar skilur það málið eftir gagnvart íslensku þjóðinni ef menn neita að leggja samninginn fyrir þjóðina vegna þess að þeim líst ekki á hann? Hvar skilur það málið eftir miðað við það hvar þjóðin stendur núna gagnvart þessu máli? Hvaða árangri verða menn búnir að ná gagnvart því að gera upp þetta stóra mál? Það hefur nú líka verið yfirlýst markmið með þessari vegferð, að gera upp þetta mál. Til hvers var þá farið af stað? Ég vil ekki gera lítið úr þessum yfirlýsingum hæstv. ráðherra, hvort sem það er hæstv. forsætisráðherra eða hæstv. loftslagsráðherra sem fjallaði um það hér fyrr í dag skýrt og skorinort að samningur sem nyti ekki stuðnings stjórnarflokkanna yrði ekki lagður fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu. Það eru nýjar upplýsingar í málinu.

Ég hygg að ég láti þar við sitja að sinni og vonast til þess á síðari stigum, eins og ég vék að, að geta farið nánar út í hvað þetta aðildarferli felur í sér til þess að varpa ljósi á mánuðina og misserin og árin fram undan ef svarið verður já í ágúst, í hvað stefni í raun og veru fyrir íslensku þjóðina, íslensk stjórnvöld, íslenska stjórnkerfið, ef svarið verður já, sem verður svo mögulega til þess að þjóðin fái síðan ekki að greiða atkvæði um samninginn í sjálfu sér. Það verður vonandi tækifæri til þess hér á síðari stigum.