157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:34]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir hans fínu ræðu. Nú er ég ekki þingmaður Flokks fólksins en þar sem það er enginn þingmaður Flokks fólksins hér í salnum til að svara fyrir afstöðu þess flokks vil ég koma því á framfæri að ef ég man þetta rétt, sem ég er nokkuð viss um að ég geri, þá var spurningin í kosningaprófinu sem hv. þingmaður fjallaði um í sinni ræðu hvort flokkurinn myndi beita sér fyrir því að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla á kjörtímabilinu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Við því sagði Flokkur fólksins nei á meðan Samfylkingin og Viðreisn sögðu já. Aftur á móti var einnig spurt: Mun flokkurinn beita sér gegn því að haldin verði slík þjóðaratkvæðagreiðsla á kjörtímabilinu? Þá sagði Flokkur fólksins líka nei þannig að þau ætla ekki að beita sér fyrir slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu, sem kannski kemur ekki á óvart miðað við stefnu þess flokks, en þau myndu ekki heldur beita sér gegn henni. Að því leytinu til finnst mér afstaða Flokks fólksins og það að þingmenn Flokks fólksins hafi ekki tekið þátt í þessari umræðu í rauninni bara vera í samræmi við það sem þau alla vega sögðu í þessu kosningaprófi fyrir kosningar.

Mér fannst þetta áhugaverð umfjöllun hjá hv. þingmanni varðandi þau skilaboð sem send hafa verið um að ríkisstjórnin myndi ekki leggja lélegan samning fyrir þjóðina. Í þessu nefndaráliti meiri hluta, líkt og þingmenn minni hlutans á þingi hafa kallað eftir, er fjallað um samningsmarkmið og það hefur mikið verið kallað eftir rauðum línum og að það sé skýrt hvert umboð ríkisstjórnarinnar er ef þjóðin greiðir atkvæði með því að ganga til þessara viðræðna. En þá skil ég ekki alveg hvert hv. þingmaður er að fara. Er hv. þingmaður að segja að ef okkur myndi t.d. ekki takast að tryggja yfirráð Íslendinga yfir sjávarauðlindinni, sem er eitt af þeim samningsmarkmiðum sem liggja fyrir í nefndarálitinu, ætti ríkisstjórnin samt að leggja þann samning fyrir þjóðina, jafnvel þó að þetta sé eitt af þeim skýru samningsmarkmiðum sem koma fram í nefndaráliti og hér í umræðunni og víða annars staðar?