157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:36]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Ég er auðvitað þeirrar skoðunar almennt að öðrum þræði hafi þjóðin verið spurð hvað henni þætti um aðild að Evrópusambandinu í síðustu kosningum og þar lenti fylgið eins og það lenti. Það er ekki meiri hluti á Alþingi fyrir því að fara inn í Evrópusambandið, eins og maður horfir á flokkakerfið. Þannig að út frá því hvort maður telji æskilegt að vonlaus samningur, eins og því hefur verið lýst af hálfu hv. þingmanna Samfylkingarinnar, sé lagður fyrir þjóðina þá tel ég það ekkert sérlega áríðandi verkefni heldur.

Ég er hins vegar að tala um þetta líka út frá orðalaginu í þingsályktunartillögunni sem við erum að ræða af því að þar stendur berum orðum að fyrir liggi að þjóðin geti ekki tekið afstöðu til aðildar nema að aðildarviðræðum verði haldið áfram og þeim lokið með samningi um aðild Íslands að ESB sem síðan yrði lagður fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar. Það er kannski það sem ég vísa í, að í þessari þingsályktunartillögu er boðað nokkuð skýrt að þessi samningur, þegar hann liggur fyrir, verði lagður fyrir þjóðina en mér finnst fyrirvarar koma fram um það hvort það eigi að gera þetta í máli hæstv. ráðherra og þingmanna Samfylkingarinnar. Ég veit að það er ekki til siðs að vera að spyrja spurninga þegar maður er að svara andsvörum en ég hefði áhuga á að vita hvað hv. þingmanni finnst. Finnst honum þessi þingsályktunartillaga eins og hún lítur út skuldbinda Alþingi og ríkisstjórnina, ef hún er samþykkt, til að leggja samninginn fram sama hvað eða skilur hann þingsályktunartillöguna með öðrum hætti?