þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það var af nógu að taka úr lofræðu hv. þingmanns og fullyrðingum, m.a. varðandi fordæmalausan samning Íslands en þó hefur engin efnisleg staðreynd komið fram sem styður þá fullyrðingu. En þetta verður að fá að bíða eftir næstu ræðu minni því að ég ætla að einbeita mér að þeim villandi staðhæfingum sem hv. þingmaður heldur hér fram alveg gjörsamlega þvers og kruss. Ég velti því fyrir mér hvað Feneyjanefndin hefði haft að segja um þennan málflutning stjórnarliða. Ýmist er því haldið fram að þjóðin fái að kjósa um samning, að niðurstaða verði lögð fyrir þjóðina, en svo er slegið úr og í. Svo er farið að tala um samning sem næst og sem uppfylli skilyrðin í tillögu og nefndaráliti, ef ég hef rétt eftir hv. þingmanni. Mig langar því til að spyrja hv. þingmann að þessu, þetta eru þrjár spurningar.
Í fyrsta lagi: Eru þetta skilyrðin sem hv. þingmaður vísar til, orðin í tillögu hæstv. utanríkisráðherra um að hagsmunamarkmiðin frá 2009 verði höfð til hliðsjónar, orðalag í nefndaráliti meiri hlutans um að afstaða verði áréttuð, um að meiri hlutinn leggi áherslu á, um að meiri hlutinn árétti, um að mikilvægt sé að árétta o.s.frv. — eru þetta skilyrðin sem hv. þingmaður vísar til? Í öðru lagi: Ef þetta eru eiginleg skilyrði, af hverju eru þau þá ekki skrifuð inn í tillögutextann? Af hverju leggur meiri hlutinn ekki til, eins og gert var árið 2009, að skilyrði nefndarálitsins séu skrifuð skýrt og skilmerkilega inn í tillögutextann? Í þriðja lagi: Er hv. þingmaður ósammála formanni utanríkismálanefndar, sem hefur haldið því fram hér í þingsal að við eigum ekki að fara í skilyrtar samningaviðræður við Evrópusambandið?