afstaða heilbrigðisráðherra til Evrópusambandsaðildar.
Frú forseti. Ég vildi aðeins forvitnast um afstöðu hæstv. heilbrigðisráðherra til Evrópusambandsaðildar og þeirrar vinnu sem kann hugsanlega að vera hafin innan ráðuneytis hennar í tengslum við þau mál. Auðvitað varðar þetta mál heilbrigðiskerfið okkar. Nú sjáum við að innan EES-samningsins höfum við vissar heimildir til að hnika til ákveðnum atriðum eins og t.d. að lengja eða stytta þann tíma sem fólk þarf að dvelja í landinu sem EES-borgarar áður en það fær fullan aðgang að sjúkratryggingum og annað eins, sem er reyndar verið að stytta núna, en ef við förum inn í ESB verða væntanlega breytingar á þessu. Í framvinduskýrslum sem komu fram á sínum tíma erum við að miklu leyti vel samræmd kerfinu nú þegar í gegnum EES-samninginn. Það eru samt ýmis atriði, t.d. er nefnt í skýrslu Hagfræðistofnunar að við aðild þurfi að tryggja að löggjöf um samræmingu almannatryggingakerfa taki til ríkisborgara ríkja utan Evrópusambandsins sem eru löglega búsettir í landinu, þ.e. að ríkisborgarar sem eru ekki ríkisborgarar Evrópusambandsins en búa þó löglega í ríkjum Evrópusambandsins fái jafnvel aðgang að kerfinu hér á Íslandi ef við verðum aðilar að Evrópusambandinu. Þetta eru stórar spurningar og spurning hvort þetta hafi verið tekið með í reikninginn þegar við tölum um að Ísland verði nettógreiðandi við inngöngu í Evrópusambandið, hvort þetta og áhrifin á heilbrigðiskerfið á Íslandi hafi verið reiknuð út til hlítar og hversu langt undirbúningur þess efnis sé kominn í ráðuneyti heilbrigðisráðherra.
Nú eru ýmsir hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar farnir að setja fram fjölbreytt skilyrði fyrir því að þeir geti yfirleitt hugsað sér að leggja samninginn fram í annarri lotu eftir fyrri atkvæðagreiðslu jafnvel þótt það sé reyndar skýrt kveðið á um það að mínu mati, eins og ég skil þingsályktunartillöguna, að það verði gert. Þá eru samt farin að koma fram skilyrði um undir hvaða kringumstæðum hæstv. ráðherrar hugsi sér að styðja það að samningurinn verði lagður fram í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hefði áhuga á að vita hvort hæstv. heilbrigðisráðherra sé komin svo langt að setja fram slík skilyrði sjálf. (Forseti hringir.) Hvað telur hæstv. heilbrigðisráðherra nauðsynlegt að náist í samningaviðræðum til að hæstv. ráðherra geti stutt þennan samning?