afstaða heilbrigðisráðherra til Evrópusambandsaðildar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir spurninguna. Það er jú þannig að EES-samningurinn nær að stórum hluta til lyfjamála en ekki til heilbrigðismála. Ég hef t.d. áhyggjur af því að ef til einhverrar mikillar heilbrigðisvár kemur, líkt og heimsfaraldur Covid var, þá erum við ekki einungis smáþjóð, við erum örþjóð. Þar erum við ein á báti varðandi það t.d. að afla nauðsynlegra bjarga sem gæti þurft að afla. Þetta er eitt, þ.e. heilbrigðisviðbúnaður, það væri gott að vera í samfloti varðandi hann. Mér heyrðist þingmaðurinn tala um almannatryggingar. Þær eru auðvitað ekki undir heilbrigðisráðherra heldur félagsmálaráðherra. Ég hef byrjað að kynna mér hvað í þessu felst. Það er einn kafli sem búið var að loka sem heitir neytendavernd og heilsuvernd. Ég hélt satt best að segja að heilbrigðisþjónustu og heilbrigðiskerfi væri gert hærra undir höfði og það kynni kannski að vera sérkafli þar en það virðist ekki vera. Ég hef beðið um að fá aðgang að þessum kafla. Hann hefur ekki borist. Það er hins vegar í vinnslu. Því er ég ekki lengra komin en þetta, að hugsa um aðgang að heilbrigðisviðbúnaði og ýmsum björgum þar að lútandi.
Hvað varðar komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, ef samþykkt verður, þá mun ég segja já því að mér leikur einmitt hugur á að sjá hvað verður í boði.