afstaða heilbrigðisráðherra til Evrópusambandsaðildar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég reyndar minnist þess ekki að það hafi verið nein sérstaklega mikil samstaða meðal Evrópusambandsríkja í faraldrinum endilega heldur kom þar frekar í ljós að hver og einn vildi heldur gæta sinna hagsmuna. Ég velti fyrir mér hvort hæstv. ráðherra þyki að okkur hefði farnast betur í faraldrinum hvað varðar aðföng og bóluefni og annað eins ef við hefðum verið þar innan dyra, en það er efni í aðra umræðu. Við erum auðvitað að tala um samningsmarkmið í tengslum við Evrópusambandið og þegar við erum að fara í þessa atkvæðagreiðslu, hvort sem er í þinginu eða síðar þegar að þjóðaratkvæðagreiðslunni kemur, þá held ég að það sé mikill fengur í því fyrir þjóðina að það komi mjög skýrt fram af hálfu hvers og eins ráðuneytis hvers menn eru að æskja. Ég held að það færi mjög vel á því t.d. ef hæstv. ráðherra gæti komið hér í umræðu á eftir og farið einfaldlega yfir þessi sjónarmið út frá sjónarmiði heilbrigðisráðuneytisins þannig að fólk viti að hverju það gengur þegar það tekur þessa afdrifaríku ákvörðun. Ég hefði áhuga á að vita hvort hæstv. ráðherra sé fús til þess. Ég ætlaði nú að fara að ræða um t.d. möguleg áhrif ætlaðrar aukaaðildar Úkraínu að Evrópusambandinu sem Þýskalandskanslari hefur boðað. (Forseti hringir.) Það er spurning hvort ráðherra gefist tóm til að bregðast við því hvort hann hafi undirbúið sömuleiðis viðbrögð ráðuneytisins við því.