afstaða heilbrigðisráðherra til Evrópusambandsaðildar.
Hæstv. forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir athugasemd og spurningu. Það er alveg rétt að heimsfaraldur Covid leiddi í ljós margs konar brotalamir í samhæfingu ríkja og viðbúnaði. Við stóðum vissulega vel hér með ágætislöggjöf og góðar birgðir en það sem gerðist hins vegar innan Evrópusambandsins að afloknum faraldri var að sambandið ákvað að taka þessi mál miklu fastari tökum. Meðal annars var stofnuð séreining sem er kölluð HERA, „Health Emergency Preparedness and Response Authority“, þar sem mikil vinna fer nú fram varðandi viðbúnað. Þar er líka mikil vinna í gangi varðandi aðgang að lyfjum því að þar eru þegar blikur á lofti bara vegna þess sem er að gerast í Mið-Austurlöndum. (Forseti hringir.)
En varðandi spurningu um samningsmarkmið þá verða þau ekki sett á blað núna. Þau verða sett á blað ef til aðildarviðræðna verður stofnað að nýju.