157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:07]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég les um það í vefmiðlum núna að hér sé mikil sátt um lyktir þessarar umræðu um þingsályktunartillögu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Ég kannast ekki við nokkra einustu sátt um umræðuna hér almennt. Þvert á móti hefur verið að byggjast upp hér nokkuð ósætti og óánægja, a.m.k. af hálfu þingmanna Miðflokksins, svo ég tali nú ekki fyrir hönd fleiri, einmitt í kjölfar umræðunnar og vegna fjarveru ráðherra, vegna fráleitra svara hæstv. ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma hér á föstudaginn og að nokkru leyti hér með svörum sem kalla á endalaust fleiri spurningar.

Hvað varðar hins vegar lyktir þessarar umræðu, sem menn hafa væntingar um að verði seinna í kvöld, þá vil ég óska eftir liðsinni forseta við það að verða við kröfu þingmanna minni hlutans um að fá aðgang að þeim gögnum sem eru vistuð í einhvers konar leyniherbergi hér á vegum hv. utanríkismálanefndar en öðrum þingmönnum hefur ekki verið veittur aðgangur að. Ég óska eftir fullum aðgangi að þessum gögnum.