157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:08]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er ekki hjá því komist að aðeins að velta sér upp úr því hvernig hæstv. ráðherra svaraði hér áðan spurningunni um það hvernig hann ætlar að greiða atkvæði við þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Hann neitar að gefa upp afstöðu sína. Sami ráðherra og situr í ríkisstjórn sem ætlar að bjóða þjóðinni upp á að fara til þjóðaratkvæðagreiðslu, það er í boði hennar, málið er lagt fram af ríkisstjórninni, en ráðherrar í ríkisstjórninni neita að gefa þjóðinni upp hvernig þeir ætla að kjósa, hvort þeir styðji þetta mál eða ekki. Þetta er auðvitað fáheyrt, virðulegur forseti.

Annað sem ég vil vekja athygli á hér: Það er talað um það, m.a. af virðulegum forseta, að það geti orðið hér víðtækari sátt um málalyktir í þessu máli og afgreiðslu hér á þinginu. Grundvallaratriði til þess er auðvitað að hæstv. ráðherra málaflokksins sé viðstaddur síðari umræðu málsins til að taka hér þátt í umræðunni og svara þingmönnum um krefjandi spurningar. Þetta er auðvitað algjörlega óboðlegt. Þingsályktunartillögur eru í tveimur umræðum. (Forseti hringir.) Það er seinni umræða og afgreiðsla málsins og ráðherrann hefur varla sést hér í salnum. Ef það er einhver vilji hjá ríkisstjórninni til að greiða fyrir afgreiðslu málsins, virðulegur forseti, þá hvet ég þig til að kalla hæstv. ráðherra til leiks til að geta hjálpað til í þeirri vinnu.