157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:10]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Fyrr í dag rak ég augun í fyrirsögn á Vísir.is: Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð. Það er þegar fyrirsögnin á greininni. Ég kannast ekki við, frú forseti, að hafa sætt mig við það á einhverjum tímapunkti að klára hér einhverja umræðu áður en þjóðin fær aðgang að öllum þeim skjölum sem hljóta að skipta máli til að taka upplýsta ákvörðun. Enn háttar svo til, frú forseti, að ákveðnum skjölum er haldið frá þingmönnum og þar með þjóðinni allri.

Mig langar líka að nefna í þessu stutta erindi, vegna fyrri svara sem komu hér í óundirbúnum fyrirspurnum af hálfu hæstv. ráðherra Flokks fólksins, hvernig Flokkur fólksins svaraði eftirfarandi spurningu, með leyfi forseta: Mun flokkurinn á næsta kjörtímabili styðja það að tekin verði skref í áttina að inngöngu í Evrópusambandið, t.d. með þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sótt verði um aðild á ný að sambandinu? (Forseti hringir.)

Frú forseti. Svarið var nei.