157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:17]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Hérna er mikið talað um sátt en auðvitað snýst það allt einfaldlega um forsendur fyrir því að geta afgreitt þetta mál út úr þinginu og síðan fer það til þjóðaratkvæðagreiðslu. Forsendurnar þurfa einfaldlega að vera fyrirliggjandi. Stórum spurningum er ósvarað, eins og t.d. bara á allra síðustu dögum hafa hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn verið að koma fram með nýstárleg skilyrði fyrir því að þeir geti hugsað sér að leggja samninginn fram til síðari þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig að það er búið að koma því ferli, sem er nú frekar skýrt lýst í þingsályktunartillögunni, í ákveðið uppnám og ákveðna óvissu. Ofan á það bætist að hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn neita að svara því hér í óundirbúnum fyrirspurnum hvort þeir muni styðja þjóðaratkvæðagreiðsluna í fyrri lið. Hver veit þá hvernig það verður í síðari hlutanum þegar hæstv. ráðherra í ríkisstjórn, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Jóhann Páll Jóhannsson, er búinn að lýsa því að þessi samningur verði ekki lagður fyrir þjóðina yfirleitt nema hann njóti stuðnings stjórnarflokkanna, eða hvernig það var orðað, sem stjórnarflokkarnir standa ekki með, minnir mig eindregið að hann hafi orðað það. (Forseti hringir.) Þannig að það er búið að setja algjörlega ný skilyrði fyrir því að áformin um tveggja hluta þjóðaratkvæðagreiðslu gangi eftir og það þarfnast einfaldlega frekari skýringa þannig að við erum ekki með forsendurnar til þess að afgreiða þetta mál.