umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Frú forseti. Ég vil taka undir með þeim sem hafa bent á að auðvitað er mikilvægt að skjöl eða fundargerðir um einhvers konar viðræður eða fundi úti í Evrópu þar sem íslenskir ráðamenn eru að ræða við kollega sína í Evrópusambandinu verði opnuð og birt öllum almenningi. Hvað getur verið í þessum skjölum sem á ekki erindi til almennings? Hvað geta þessir aðilar úti í Evrópu, íslenskir aðilar og aðilar í Evrópusambandinu, verið að ræða þarna sem kemur íslenskum almenningi ekki við núna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort við eigum að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið? Hvað gæti það hugsanlega verið?
Nei, frú forseti. Auðvitað á að birta þetta og ég geri kröfu um, og mun gera það þegar ég fer í mína ræðu um þetta mál, að þetta verði allt birt.