157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:20]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég má til með að koma því hér inn sem fulltrúi Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd að tekið var undir beiðni minni hlutans og fulltrúa þeirra um að ráðuneytin afhentu nefndinni gögn sem varða samskipti við Evrópusambandið, ekki í tengslum við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu eða hugsanlegar aðildarviðræður sem kunna að fara í gang núna. Í þessum skjölum voru gögn frá 2009–2013. Í þeim gögnum sem birt voru undir leynd í sérstöku herbergi er hreinlega að finna gögn um aðrar viðræður sem varða ekki þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, enda eru slíkar viðræður ekki hafnar. Kann að vera að það henti hreinlega minni hlutanum að hafna því að fara inn og kynna sér þessi gögn og sinna sínu starfi í utanríkismálanefnd? Kann að vera að það henti þeim betur að segja að þessi gögn séu tortryggileg? (Forseti hringir.) Vinnið vinnuna ykkar. Farið og kynnið ykkur gögnin og komið svo og óskið eftir því að þau séu afhent almenningi því þau eru bundin trúnaði af góðri ástæðu. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )