157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:22]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það er með nokkrum ólíkindum að þetta risastóra mál sé komið á þann stað sem það er núna statt þegar við sjáum fyrir endann á þeirri þinglegu meðferð sem þinginu var uppálagt að klára. Stjórnarandstaðan hefur verið skýr um það að hún muni ekki standa í vegi fyrir því að þetta mál nái til þjóðarinnar eins og lagt er upp með, en það er ekki þar með sagt að það sé ekki gagnrýnisvert það sem er hægt og rétt að gagnrýna í þessu ferli. Þau atriði sem eru ekki nægilega skýr gagnvart þjóðinni eru auðvitað mýmörg. En það sem er að koma núna fram, glænýtt fram á sjónarsviðið, hlýtur að vera eitthvað sem forseti tekur til sín varðandi þá þinglegu meðferð sem hér er undir. Forsætisráðherra ásamt öðrum ráðherrum hefur komið fram og sagt að það sem er uppálagt í öllum gögnum málsins um tvær atkvæðagreiðslur sé mögulega ekki þannig. Það er grundvöllur málsins (Forseti hringir.) gagnvart þjóðinni að hér verði tvær atkvæðagreiðslur. Allt í einu kemur í ljós að svo er ekki, sem rímar ekki við nein gögn málsins.(Forseti hringir.)

Frú forseti. Þetta verður að sjálfsögðu að rýna betur.