umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Frú forseti. Ríkisstjórn sem segist ætla að treysta þjóðinni treystir henni ekki til að sjá samskipti sín við Evrópusambandið. Ég held að það séu alveg lykilupplýsingar fyrir okkur þingmenn, ekki bara utanríkismálanefnd, og þjóðina alla að fá þessar upplýsingar. Svo tel ég líka, frú forseti, að það sé óeðlilegt að hæstv. forsætisráðherra taki ekkert þátt í umræðunni. Hæstv. utanríkisráðherra er heldur ekki hér til svara í dag til að við getum spurt hana: Hvað er í þessum gögnum sem þjóðin má alls ekki sjá? Þetta er mjög óeðlilegt. Minni hlutinn er að reyna að gera allt sem hann getur til að liðka fyrir málinu. [Hlátur í þingsal.] Meiri hlutinn tekur ekki þátt.
Frú forseti. Þetta er bara gott dæmi um það sem við erum að horfa upp á. Hér eru meirihlutaþingmenn sem mæta ekki af neinu viti í umræðuna hlæjandi yfir því að við viljum skoða þetta mál betur. Þetta er eitt stærsta mál ríkisstjórnarinnar en þið viljið hraða því í gegn. Hvað varð um að treysta þjóðinni?